Fleiri ráðherrar á Tortóla?

Eitt er víst. Tortólamáli maka forsætisráðherra er ekki lokið og boðar Jóhannes Kr. rannsóknarblaðamaður fleiri upplýsingar síðar.
Þetta hafði fjármálaráðherra að segja um málið:
-Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra svaraði að hann ætti erfitt með að svara spurningunni, hann hefði ekki upplýsingar til að bregðast við. Hann gæti ekki fullyrt neitt um stöðu einstakra ráðherra, hvort þeir ættu eignir á Tortóla, en taldi að eignir ráðherra í útöndum þyrftu ekki að kalla á hagsmunaárekstur gagnvart þrotabúum íslensku bankanna.-(hringbraut.is)
Nú hafa þingmenn sett sér siðareglur. Þar segir m.a.:
8. gr.
Þingmenn skulu við störf sín forðast árekstra milli almannahagsmuna og fjárhagslegra hagsmuna þeirra eða annarra hagsmuna sem eru faglegir, persónulegir eða tengdir fjölskyldu þeirra, hvort sem þeir eru raunverulegir eða hugsanlegir. Leysa skal úr slíkum málum með almannahagsmuni að leiðarljósi. Takist þingmanni ekki að koma í veg fyrir hagsmunaárekstra af þessu tagi skal hann upplýsa um þá.
Þó ekki verður að ætla að ítrustu reglum verði framfylgt er morgunljóst að all oft skarast þingmál og erlend viðskipti.
Það verður því fróðlegt að fylgjast með hagsmunaskráningu þingmanna OG þar með ráðherra á næstunni.
Athugasemdir