Þessi færsla er meira en 8 ára gömul.

Fjögurra flokka stjórn í spilunum

Fjögurra flokka stjórn í spilunum

Nú þegar athyglin fer frá fríi og forseta til stjórnmálanna er ljóst að mikil tíðindi eru í vændum.

Alþingi kemur saman eftir tvær vikur og miklu skiptir að gott samkomulag verði um dagskrá þingsins og kosningar.

Í spilum stjórnmálanna höfum við nú þegar fengið að sjá á nokkur spil.

Það er ljóst miðað við yfirlýsingar Vinstri grænna, Pírata og Samfylkingar að tveggja flokka stjórn er ekki kostur. 

Með þessari yfirlýsingu er ólíklegt að forseti feli formönnum stjórnarflokkana umboð til stjórnarmyndunar.

Líklegast er að hann feli Pírötum að fara fyrsta hringinn og þriggja flokka stjórn sé markmiðið.

Svo gæti farið að niðurstaðan verði stjórn Pírata, Samfylkingar og Vinstri grænna, undir forsæti Katrínar Jakobsdóttur formanns Vg. 

Þá er einnig í spilunum að bjóða Viðreisn að stjórnarborðinu sem gerði stjórnina sterkari og fjölbreyttari.

Aðrar þriggja flokka stjórnir gætu komið upp úr kjörkössunum, t.d. stjórn Vinstri grænna, Viðreisnar og Pírata. 

Kannanir og svo kosningaúrslit munu endanlega sýna kapalinn. 

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið á blogginu

Nýtt efni