Þessi færsla er meira en 9 ára gömul.
Erindi til forseta

Þegar ég frétti af grein eftir Kára Stefánsson í Morgunblaðinu þar sem hann fer fram á að forsetaframbjóðandinn geri grein fyrir hagsmunum sínum og erlendum tekjum, datt mér í hug að snúa mér beint að forsetanum.
Ég hef nefnilega beint spurningum til forsetans af öðru tilefni á bloggsíðu minni er var réttilega bent á af forsetaritara að forsetinn svaraði einungis erindum sem væri beint til hans með formlegum hætti.
Þar sem forsetanum ber ekki skylda að svara Kára vildi ég hnykkja á erindinu sem er gott og blessað.
Ég vil taka það fram að með jafn hressum forseta af vestfirskum ættum er engin hætta á að Bessastaðir breytist í elliheimili.
Vonast ég nú til að forsetinn og forsetaframbjóðandinn svari innan tíðar.
Athugasemdir