Þessi færsla er meira en 8 ára gömul.

Er Sjálfstæðisflokkur endanlega klofinn?

Er Sjálfstæðisflokkur endanlega klofinn?

Það verður að teljast til stórtíðinda að fyrrverandi formaður og varaformaður sama stjórnmálaflokks ganga til framboðs og starfa fyrir annað stjórnmálaafl. Ekki kann ég hliðstæðu í íslenskum stjórnmálum en áður hefur kvarnast úr Sjálfstæðisflokknum.

1.   Borgaraflokkurinn var stofnaður af Alberti Guðmundsyni en hann klofnaði frá Sjálfstæðisflokknum árið 1987 í kjölfar Hafskipsmálsins. Fyrirtæki Alberts blandaðist í málið og honum gert að segja af sér embætti iðnaðarráðherra 24. mars af forystu Sjálfstæðisflokksins.
Borgaraflokkurinn náði sjö þingmönnum í kosningunum 1987. Meðal þeirra voru feðgarnir Albert Guðmundsson og Ingi Björn Albertsson.

Þegar Albert gerðist sendiherra 1989 kvarnaðist úr flokknum. Síðast bauð Borgaraflokkurinn fram í kosningunum 1991 en náði ekki inn manni og var lagður niður árið 1994. (byggt á Wikipedia)

2.   Frjálslyndi flokkurinn var stofnaður af Sverri Hermannssyni, fyrrverandi þingmanni Sjálfstæðisflokksins og bankastjóra Landsbankans, í nóvember 1998. Meðal helstu baráttumála var að breyta fiskveiðistjórn, umhverfisvernd, sér í lagi á hálendi Íslands og að varðveita velferðarkerfið.  Ekki munaði nema 13 atkvæðum að flokkurinn fengi einn þingmann til. Í Alþingiskosningunum 2007 fékk flokkurinn aðeins lægra fylgi, 7,26% en hélt fjórum þingmönnum. Mikil innanflokksátök einkenndu flokkinn kjörtímabilið 2007-2009 og tveir af fjórum þingmönnum flokksins gengu úr honum. Í kosningunum 2009 beið flokkurinn afhroð, datt af þingi og hlaut aðeins 2,2% atkvæða.(byggt á Wikipedia)

3.   Nýtt afl var stjórnmálahreyfing sem stofnuð var árið 2002 og bauð fram til Alþingis í kosningunum 2003. Meðal forystumanna í hreyfingunni var Jón Magnússon fyrrverandi Sjálfstæðismaður. Samtökunum tókst ekki að afla sér nógu mikils fylgis til að koma manni á þing, þrátt fyrir að hafa vakið talsverða athygli í aðdraganda kosninganna. Árið 2006 gekk Nýtt Afl til samstarfs við Frjálslynda flokkinn að frumkvæði Jóns Magnússonar, sem bauð sig fram á lista flokksins og varð 10. þingmaður í Reykjavíkurkjördæmi suður að loknum kosningum 2007. Jón yfirgaf Frjálslynda og Nýtt afl í febrúar 2009 þegar hann gekk á ný til liðs við Sjálfstæðisflokkinn. (byggt á Wikipedia)

Af þessu sést að meginreglan er sú að þingmenn þessara flokka hafa oftar en ekki ekki snúið til baka til Valhallar.

Það verður því fróðlegt að sjá hvort brugðið verði frá þeirri reglu.

 

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið á blogginu

Nýtt efni