Þessi færsla er meira en 9 ára gömul.

Er Guðni Th. eina ógn forsetans?

Er Guðni Th. eina ógn forsetans?

Klukkan tifar og það styttist í framboðsfrest og forsetakjör. Eins og staðan nú er fátt sem kemur í veg fyrir þrásetu núverandi forseta.

Ég nota hér djarft orð, þráseta, þrátt fyrir að hverjum er heimilt að bjóða sig fram og sitja á forsetastóli eins lengi og kjósendur ákveða.

En, þráseta í þannig merkingu að þungt loft myndast í kyrrsetu og súrefni vantar.

Ætlan hjá Ólafi Ragnari byggir á sjálfsákvarðari ábyrgð forsetans, eiginlega forræðishyggju. 

Forræðishyggja er vond.

Núverandi forseti er hliðvörður breytinga á stjórnarskránni. Forsetinn telur að allar breytingar á stjórnarskránni eigi að gera í samráði við hann.

Í áramótaræðu forsetans á nýársdag 2013 sagði forsetinn m.a: 

 

-Því er  miður  að nú um  áramótin blasir við að umræðan  um  nýja  stjórnarskrá er á  ýmsan  hátt  komin  í  öngstræti.  Í stað samstöðu um  sáttmálann  geisa djúpstæðar  deilur og virtir  fræðimenn við  háskóla  landsins hafa  áréttað  að margt sé óskýrt og flókið í tillögunum. -

Hann hefur oftar tjáð sig um stjórnarskrárbreytingar, lagst hart á móti breytingum á forsetaembættinu og stöðu ríkisráðs.

Þar er forsetinn stíflaður ventill.

En á hliðarlínunni bíður maður.

Líklegast hefur enginn ekki-frambjóðandi fengið meiri stuðning. 

Algjör andstæða núverandi forseta.

Það kann að vera að fundinn sé einstaklingur sem gæti hleypt nýjum straumum OG súrefni á Bessastaði.

Guðni veit að ekkert liggur á. Aldrei þessu vant er byrinn ekki núverandi forseta í hag.

Ólafur Ragnar þarf því að bretta upp ermar.

A kingdom for a horse!

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið á blogginu

Nýtt efni