Er þetta þá bara í góðu lagi?

Ekki er traust á stjórnmálamönnum að aukast þessa dagana. Upplýsingar um hagsmuni og geymslu fjár og fasteigna eiga þar sök. Yfirleitt, ég held í öllum tilfellum, eru þetta eignir í skattaskjólum. Skattaskjól er jú heiti á geymslustað þar sem má njóta meir en skotheldum peningaskápum. Þar er fé óháð íslenskum krónuveruleika OG þar er, ef hugur er spilltur, fela fé og eignir.
Sem betur fer koma fram lögfræðingar eins og Jón Steinar Gunnlaugsson og Brynjar Níelsson og fullvissa okkur um að "ekkert ólöglegt" sé við þessa geymsluhætti og gerning.
Hjúkk.
Þessum lögskýrendum ber að þakka hversu hratt þeir settu sig inn í málin jafnvel átta sig á málaástæðum á örfáum klukkustundum.
Samt hef ég áhuga á því að vita hvort fleiri stjórnmálamenn hafi tortólast.
Hvað með hæstaréttardómara?
Ráðuneytisstjóra?
Hvað með forsetahjónin?
Löglegt en siðlaust?
Athugasemdir