Þessi færsla er meira en 9 ára gömul.

Engin pólitísk tíðindi

Engin pólitísk tíðindi

Ofurálitsgjafar almiðla telja véfregnir úr Hádegismóum stór pólitísk tíðindi. Stjórnmálahaninn hafi snúist höfuðátta á milli, frá vestri til austurs. Nú eigi að klappa rússneska birninum og hasta á ameríska örninn.

En það eru engin stórtíðindi. Hádegismóamórinn er í heilögu stríði við Evrópusambandið sem fékk í raun vesturveldin í þessar þvingunaraðgerðir.

Þarna styður afturhald annað afturhald.

Afturhald allra þjóða sameinist!

Ofanálag ritmórans er svo útvegshöndin sem brauðfæðir.

Mér finnst leitt að ritstjórinn endi sem Bit-Brandur í sagnaritin.

Ritstjórinn kunni lítt að leika vonda gæann í bernskuleikjunum á Klambratúni forðum.

 

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið á blogginu

Nýtt efni