Þessi færsla er meira en 9 ára gömul.

"Ekkert var rætt undir þessum lið."

"Ekkert var rætt undir þessum lið."

Það eru nú ekki stórbrotnar fregnir sem berast úr núverandi stjórnarskrárnefnd:

45. fundur stjórnarskrárnefndar

Mánudaginn 11. janúar 2016
Dagskrá

    Fundargerð síðasta fundar
    Heildardrög að frumvarpi
    Önnur mál

Fundargerð

45. fundur – haldinn mánudaginn 11. janúar 2016, kl. 15.00, í Safnahúsinu, Reykjavík.

Mættir voru eftirtaldir: Páll Þórhallsson, formaður, Aðalheiður Ámundadóttir, Birgir Ármannsson, Einar Hugi Bjarnason, Jón Kristjánsson, Katrín Jakobsdóttir, Valgerður Bjarnadóttir og Valgerður Gunnarsdóttir. Forföll höfðu verið boðuð af ftr. Bjartrar framtíðar.

Þá sat fundinn Sif Guðjónsdóttir, lögfræðingur á löggjafarskrifstofu forsætisráðuneytis og ritari nefndarinnar.
1. Fundargerð síðasta fundar

Fundargerð 44. fundar, sem haldinn var miðvikudaginn 30. desember 2015, var samþykkt án athugasemda.

2. Heildardrög að frumvarpi

Rætt um stöðu og framhald.

3. Önnur mál

Ekkert var rætt undir þessum lið.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17.30.

-

Mér er algjörlega fyrirmunað að skilja hvað hægt sé að ræða um á 2 1/2 klukkustund enn og aftur um breytingar á stjórnarskrá. Ef við gerum ráð fyrir að þetta sé sá meðaltalstími sem fundað er þá hefur nefndin rætt um þess fjóru punkta í rúmar 100 klst. Augljóst er að það er verið að draga fólk á asnaeyrunum.

Aðallega þá sem vilja raunverulegar breytingar og það strax. Má ekki a.m.k. bóka lappadráttinn undir liðnum önnur mál?

Eru allir sofnaðir?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið á blogginu

Nýtt efni