Þessi færsla er meira en 9 ára gömul.

Einelti er sálarmorð

Einelti er sálarmorð

Enn einu sinni blossar upp ljót saga um einelti. Líklegast vegna þess að linað er á aðhaldinu. 

Það þarf sífellt að fræða og upplýsa um fyribrigðið einelti.

Það nægir ekki eins og mátti skilja á svari fulltrúa á Skóla-og frístundasviði Reykjavíkurborgar að foreldrar eigi að læra á samskiptamiðla og fylgjast betur með börnum sínum.

Það þarf að breyta hugarfari.

Að koma í veg fyrir einelti er sífellt strit og ferli. 

Ég er ekki viss að eineltisáætlun virki þegar þessi viðbrögð eru skoðuð:

Ekki náðist í Kristínu Jóhannesdóttur, skólastjóra Austurbæjarskóla. Ólöf Ingimundardóttir aðstoðarskólastjóri vildi ekki tjá sig um málið þegar leitað var eftir því, og ekki heldur Helgi Grímsson sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar.  Fréttastofa hefur þó upplýsingar um að skólinn hafi reynt ýmis úrræði og meðal annars hafi ein stúlknana verið rekin tímabundið úr skóla.

 Fréttin er á RÚV.

Viðbrögðin eru óviðunandi.

Einelti er grimmilegur verknaður sem getur leitt til örkumlunar, jafnvel dauða.

Ágætis herferð var framkvæmd hér um árið þegar Olweus áætlunin komst á dagskrá undir stjórn Þorláks Helga Helgasonar.

Nú þarf að skerpa og hefja nýtt átak.

Strax í dag.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið á blogginu

Nýtt efni