Dönsk lög - einkar ógeðfelld

Danska minnihlutastjórn Lars Løkke Rasmussen fékk samþykkt ansi umdeild lög um reglur fyrir hælisleitendur. Mest deila menn á þá reglu að heimilt sé að gera upptækar eigur umfram ákveðinni upphæð.
Mestu furðu vekur að dönsku sósíaldemókratar studdu þetta frumvarp.
Formaður framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar gat ekki orða bundist:
"Það virðist ekki nægja Dönum að flóttamenn hafa nú þegar tapað heimalandi sínu í hendur hryðjuverkamanna, heimili sínu og öllum þeim munum sem fólk hefur þurft að skilja eftir þegar það ákvað að yfirgefa landið sitt. Það virðist ekki nægja Dönum að flóttamenn hafa flestir þurft að skilja eftir fjölskylduna í stríðshrjáðu heimalandinu auk þess sem fjölmargir hafa misst fjölskyldumeðlimi á flótta, þeirra á meðal börn. Það virðist ekki nægja Dönum að flóttamenn glíma nú margir hverjir við andlega og líkamlega erfiðleika auk þess sem þeir mæta virðingarleysi, ómannúðlegri meðferð og hatri næstum því hvert sem þeir fara.
Danir hafa nú ákveðið að taka af flóttamönnum þá fáu muni sem þeir hafa mögulega náð að flýja með auk þess sem þeir hafa ákveðið að gera flóttamönnum erfiðara fyrir með að sameinast fjölskyldu sinni ef þeir ákveða að sækjast eftir aðstoð frá Dönum."
-
Undir þetta skal tekið en samt furða að ekki heyrist frá fleirum í flokki sem kenna sig við jafnaðarmennsku.
Jafnvel breska forsætisráðherranum er ofboðið:
"Statsminister Lars Løkke Rasmussen (V) skulle fredag have haft besøg af Storbritanniens premierminister, David Cameron, men det er nu aflyst, skriver nyhedsbureauet Reuters. I stedet skal Cameron mødes med Europa-Kommissionens formand, Jean Claude Juncker."
Det er noget galt i Danmark.
PS. Árni Páll Árnason formaður SF skrifar þetta á FB vegginn sinn:
„Það er full ástæða til að vara við þessari breytingu og árétta að hún gengur gegn öllu því sem eðlilegt og mannúðlegt má teljast við móttöku flóttafólks. Hún skapar þau hugrenningatengsl að flóttafólk sé almennt vel stætt og hafi að markmiði að komast undan því að leggja af mörkum í nýju samfélagi. Það er óásættanlegt og grefur undan mannúðlegum viðhorfum til flóttafólks, sem sannarlega er í brýnni þörf fyrir hæli gegn ofsóknum, styrjöldum og ofbeldi.“
Athugasemdir