Þessi færsla er meira en 9 ára gömul.
Dofin þjóð

Þrátt fyrir stöðugar fréttir af nýjum aflendingum dofnar umræðan. Jafnvel aflandsflokkarnir bæta við sig fylgi í könnunum. Fólk er dofið. Samt hjálpa aflandsmiðlarnir til. Mogginn og mbl.is og Eyjan.is hafa ekki enn (5.5. kl. 12), en Útvarp Saga réttlætir hástöfum.
Þjóðin tekur kippi þegar fréttir fara yfir ofboðsmörkin og skunda á Austurvöll. En þar færist dofleikinn líka yfir.
Sú staða gæti komið upp að eftir kosningar í haust að eina tveggjaflokkastjórnin sem kæmi upp úr kjörkössunum væri stjórn Sjálfstæðisflokksins og Pírata.
Þá gæti skipt máli hver sæti á forsetastóli á Bessastöðum.
En ef doðinn víkur ekki fyrir hressilegum viðbrögðum eru vðbjargirnar ekki margar.
Og alheimur hlær.
Athugasemdir