Þessi færsla er meira en 8 ára gömul.

Búvörusamningurinn banabiti fimmflokksins?

Búvörusamningurinn banabiti fimmflokksins?

Margir hafa furðað sig á því að fjórflokkurinn ásamt Pírötunum hleypti í gegn umdeildum búvörusamning.

Píratar koma með hjáræna afsökun á hjásetu að mínu mati og vísa í almenna reglu um mál sem ekki eru útrædd. Enda hafa rabbrásir þeirra logað.

Margt má segja um Sigríði Andersen en hún stóð þó í lappirnar í þessu máli og sagði NEI.

Björt Framtíð stóð einnig í lappirnar en því miður virðist sá flokkur vera á förum og þarf ekki að standa skil á afstöðu sinni.

Samfylking og Vinstri græn koma illa út úr þessu máli og margir þekktir vinstri menn ætla ekki að kjósa þá í komandi kosningum.

Það eru nefnilega kosningar eftir sex vikur og kjósandinn mundar blýantinn.

Nú þegar hafa menn stofnað til undirskrifta til að skora á forsetann að staðfesta ekki lögin og vísa þar með lögunum til þjóðarinnar.

Líklegast er tíminn naumur og stundarglasið nær tómt.

Einhverjir eftirmálar verða samt á þessari afgreiðslu alþingis.

Afgreiðslan er vægast sagt aumleg.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið á blogginu

Nýtt efni