Þessi færsla er meira en 8 ára gömul.
Bjarni Ben og afnám tekjutengingar ellilífeyris

Heyrði í fjármálaráðherra og formanni Sjálfstæðisflokksins í viðtali áðan. Efnislega svaraði hann hvað varðar tekjutengingu ellilífeyris að hann hefði átt við grunnlífeyri tekjutryggingar.
Orðrétt segir í bréfi frambjóðandans dagsett viku fyrir kosningar:
"Við ætlum að afnema tekjutenginar ellilífeyris. Þar er sannarlega réttlætismál að ræða."
Tekjutenging ekki í eintölu með fyrirvara.
Er hægt að treysta svona stjórnmálamönnum?
Athugasemdir