Beint lýðræði

Forsætisráðherra landsins sprettur oft undan steini. Síðasta stökkið var nú síðla sunnudags í þætti Eyjunnar hans Björns Inga.
Og það var umræðan um beint lýðræði. Beint lýðræði hefur kosti og galla. Ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla er í raun eini kostur alþingis. Einungis forsetinn getur boðið þjóðinni ákvörðunarrétt á lögum. Ef þjóðaratkvæðagreiðsla um verðtryggingu ætti að verða skuldbundin fyrir löggjafann þarf stjórnarskrárbreytingu.
En því miður skilur forsætisráðherrann ekki hver tilgangurinn er með beinu lýðræði. Í hans augum er það verkfæri til að höggva á hnút stjórnarinnar um verðtryggingu.
Ekki dettur honum í hug að nú þegar hafa stjórnvöld hunsað eina þjóðaratkvæðagreiðslu, þessa sem var í október 2012.
Það einkennilegasta í þessu máli er að sami forsætisráðherra hefur forðast að ræða verðtrygginguna á alþingi. Í heil tvö ár!
Ráðherrann kemur sífellt á óvart.
Athugasemdir