Þessi færsla er meira en 9 ára gömul.

Atvinnuumsókn Össurar

Atvinnuumsókn Össurar

Össur Skarphéðinsson skrifar merka grein í Fréttablaðið. Greinin er skrifuð af mikillri þekkingu á stjórnskipan landsins. 

Það eru nokkur atriði sem hann segir án þess að segja það:

Hann lýsir breyttri stjórnskipan í forsetatíð Ólafs Ragnars, útvíkkun embættisins þannig að vel má skilja lýsingu hans sem skilgreiningu á forsetaþingræði. Ágreiningur er meðal fræðimanna hvort sú stjórnskipan hefði verið ætlunin í byrjun, en í dag hefur skapast tvíveldi milli forseta og löggjafarvalds, auk þess að forsetinn er rúmfrekri á valdsviði framkvæmdavalds.

Össur skrifar:

"Fæstir virðast líka átta sig á þeim breytingum sem geta orðið á hlutverki forseta verði ný stjórnarskrá samþykkt á næsta kjörtímabili. Á því eru nú vaxandi líkur. Þær tel ég færa forsetanum aukið formlegt og efnislegt vægi á mikilvægum augnablikum einsog við flóknar stjórnarmyndanir."

Össuri hugnast það að auka enn völd forsetans sérlega við stjórnarmyndanir.

Ennfremur:

"Fæstir virðast líka átta sig á þeim breytingum sem geta orðið á hlutverki forseta verði ný stjórnarskrá samþykkt á næsta kjörtímabili. Á því eru nú vaxandi líkur. Þær tel ég færa forsetanum aukið formlegt og efnislegt vægi á mikilvægum augnablikum einsog við flóknar stjórnarmyndanir."

Hann vill liðka fyrir að slíkt verði að veruleika. 

Einnig að forsetinn hafi sérstaka utanríkisstefnu eins og núverandi forseti hefur mótað:

"Ólafur Ragnar hefur því fært alþjóðamál innfyrir verkahring forsetaembættisins. Nýr forseti mun þurfa að geta sett á dagskrá heima og erlendis mikilvæg utanríkispólitísk málefni, sem samstaða er um meðal almennings, svo fremi þau varði beina og óbeina hagsmuni Íslands."

Þá er þessi skoðun athyglisverð:

"Í dag er það nokkuð skýr vilji þjóðarinnar að meðan rétturinn er í höndum forseta sé hann nýttur sem stjórnskipulegur neyðarhemill til að tryggja henni rétt sinn."

Ekki verður betur séð að Össur vilji að ekki séu settar skýrari reglur um synjunarvald forseta. Hann grípi í hemilinn eftir hentugleika. 

Þá kemur sjálf umsóknin:

"Forsetakjör er verðleikapróf. Þar metur þjóðin staðfestu, feril, tjáningarhæfni, lífsreynslu, og mannlega eiginleika frambjóðanda andspænis þeim vaxandi kröfum sem gerðar eru til forsetans."

Vissulega er Össur enn besti kostur sem nefndur er, en enn er langt í kosningar og ekki hollt fyrir Össur að þiggja ráð frá Brúnastöðum.

 

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið á blogginu

Nýtt efni