Þessi færsla er meira en 9 ára gömul.

Árni Páll tekur slaginn

Árni Páll tekur slaginn

Ég hef fengið örugga staðfestingu á því að Árni Páll Árnason sé ekki af baki dottinn enda góður reiðmaður. 

Hann ætlar sem sagt að taka formannsslaginn í kjöri formanns Samfylkingarinnar í vor. 

Það verða að minnsta kosti fjórir karlmenn og ein kona sem keppa um hygli þeirra tæp 20 þúsund skráðra félaga í SF. 

Þessa dagana eru formannsefnin að hafa samband við félagsmenn með ýmsum hætti. Um leið gefst tækifæri að leiðrétta félagaskránna en margir sem hringt er í kannasr ekki við félagsaðild eða vilja láta strika sig út af félagaskránni.

Líklegast mun Árni Páll hagnast á fjölda frambjóðenda sem sitjandi formaður.

Það stefnir því í fjörlegan landsfund þar sem tilkynnt verður um úrslit í formannskjörinu.

Þá er talið að Árni Páll hafi staðið sig ágætlega í aflandssennunni og engin ástæða að sundra Samfylkingunni enn frekar.

 

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið á blogginu

Nýtt efni