Þessi færsla er meira en 9 ára gömul.

Alvarleg staða forsætisráðherra og orðspor landsins

Alvarleg staða forsætisráðherra og orðspor landsins

Tvær setningar koma í hugann:

„Ég er búinn að fylgjst með þessu þjóðfélagi í 50 ár. Þetta er ógeðslegt þjóðfélag, þetta er allt ógeðslegt. Það eru engin prinsipp, það eru engar hugsjónir, það er ekki neitt. Það er bara tækifærismennska, valdabarátta.“ Styrmir Gunnarsson.

 

"Við vitum það auðvitað, við höfum farið yfir það áður, að þessi Rannsóknarskýrsla og þetta allt saman er að þvælast eitthvað fyrir okkur tímabundið“. Ólöf Nordal, innanríkisráðherra.

Margt annað kemur í hugann nú þegar von var á aukið traust og aftur væri hægt að skrifa alþingi með stórum staf.

Guðni Th. Jóhannesson var greinilega sleginn í beinu viðtali.

Eftirfarandi er ljóst:

x   Forsætisráðherra er raðlygari í beinni

x  Það er komið að mörkum þess að samflokksmenn Sigmundar Davíðs standi eð honum eða styðji hann lengur

x  Sjálfstæðismenn, sjálfir í skaðaminnkun snúa baki við forsætisráðherra. Munu jafnvel styðja eða sitja hjá við vantrausttillögu

x  Svo fastur er forsætisráðherra í lyganetinu að jafnvel Jóhannes útskýrari ræður ekki við flækjuna

x  Reiðialdan sem nú skellur á alþingi er þyngri en 2008

x   Orðspor Íslands hefur enn á ný fallið og ekkert nema afsögn forsætisráðherra getur lagað það. Fálmkenndar varnir í anda Hönnu Birnu skemmir og Ísland verður að athlægi.

x   Uppstokkun enn á ný í íslenskum stjórnmálum er nauðsyn í víðustu merkingu

x  Að lokum og enn á ný:  Ný stjórnarskrá byggð á tillögum Stjórnlagaráðs verður nauðsynlegur þáttur í uppbyggingu í öðru Lýðveldi Íslands að loknum kosningum 2017.

 

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið á blogginu

Nýtt efni