Þessi færsla er meira en 9 ára gömul.

Algjör upplausn á alþingi

Algjör upplausn á alþingi

Umræður um fundarstjórn forseta hefur varið í klukkustund. Ekkert er vitað hvernig dagskrá þingsins verður og ekki víst að þingmenn hafi geð í því að spyrja forsætisráðherra um eitt eða annað. Tími skýringanna er liðinn segir Svandís Svavarsdóttir og undir það má taka.

En forsætisráðherrann situr og situr.

Þingflokksfundur sjálfstæðismanna var fjörlegur. Það var þungt í mörgum þingmanninum eiginlega voru flestir "sjokkeraðir" og Brynjar Níelsson talaði um skýringar forsætisráðherra "án tafar". Merkilegast þótti varnarræða Óla Björns Kárasonar.

Formaður flokksins var í skjásambandi við fundinn og sagðist "skynja þungann". 

Í lokin var samþykkt tillaga um að greina ekki frá fundinum.

Hér er þetta nú samt.

Áfram halda þrumuræður stjórnarandstöðunnar og nú undir kunnugum slætti frá Austurvelli.

"Burt með vanhæfa ríkisstjórn, nýja stjórnarskrá!"

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið á blogginu

Nýtt efni