Þessi færsla er meira en 9 ára gömul.

Áhætta Árna Páls

Áhætta Árna Páls

Nú er ljóst að a.m.k. fimm frambjóðendur verða í framboðskjöri Samfylkingarinnar.

Að öllum líkindum gerðu aðrir frambjóðendur ráð fyrir að Árni Páll væri á útleið.

Formaður Samfylkingarinnar er að taka vissa áhættu fyrir hönd flokksins. Næsti mánuður verður baráttutími frambjóðenda en ekki málefnavinna fyrir landsfund sem verður í skugga alþingiskosninga.

Væntanlega verður frekar lamið á formanninum en hann hafður til skýanna.

Ekki óvænt kemur Jóhanna Sigurðardóttir fram með stuðning við Oddnýju Harðardóttur. Spurningin hvort Magnús Orri Schram fái orð frá Istanbúl.

Bernie Sanders Samfylkingarinnar, Helgi Hjörvar mun minna á sig enda á hinum skoðanaenda miðað við Árna Pál. Nægjanlegt er að nefna afnám verðtryggingar.

En Helgi Hjörvar þinflokksformaður þarf líkt og formaður að svara því til á landsfundi hvers vegna fylgið hafi hrunið um nær 20 stig á hans vakt.

Það verður því fróðlegt hvort menn vegi mann með góðseminni.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið á blogginu

Nýtt efni