Að svíkja lit og gefa vitlaust

Sigurjón M. Egilsson hitti naglann á höfuðið með því að segja að með því að taka fjármagn úr íslensku hagkerfi og flytja í Afland sé svipað og svíkja lit í spilum. Ég vil bæta við annarri spilalíkingu, að gefa vitlaust. Það er í sjálfu sér alvarlegri gjörningur því litasvikin eru sýnileg.
Ef sök fyrrverandi forsætisráðherra er hvoru tveggja, að svíkja lit OG gefa vitlaust má segja að fjármálaráðherrann hafi svikið lit.
En fleiri hafa svikið lit og gefið vitlaust. Ég birti með þessu bloggi mynd sem Oddný Harðardóttir birtir á Facebook. Hún skrifar:
Þessi mynd er merkileg. Sagt er að vestræn ríki tapi 3%-8% af skatttekjum sínum á skattaskjólum. Það gera 20 - 50 milljarða á ári hér á landi. Íslendingar eru með heimsmet í notkun skattaskjóla. Þeir ríku vilja borga lægri skatta og koma peningunum í skjól, skattaskjól og krónuskjól. Brask og undanskot ríka fólksins á meðan að hinir bera uppi velferðarkerfið fyrir alla. (Oddný Harðardóttir).
Hárrétt.
Og af því stutt er til fyrsta maí ætla ég að loka þessu svona:
Tekjuskipting og leikreglur fjármálakerfisins er óréttlátt. Fullsannað er að brauðmolakenningin er falskenning búin til af viðhaldsmönnum kerfisins.
Við hin sem höldum uppi velferðarkerfinu þurfum enn sem fyrr að kreppa hnefann. Aldrei hefur verið jafn mikil þörf á virkum verkalýðsfélögum og virkni félagsmanna.
Ef lánið leikur við landi verður komin velferðarstjórn að hausti.
Athugasemdir