Að máta forsetafötin

Margir eru að máta sig í embætti forseta Íslands þessa dagana og sumir sjá fljótt að fötin passa ekki. Ekki dugir að gera eins og systurnar í ævintýrinu um Öskubusku að klippa af sér tærnar til að passa í skóinn.
Forsetaefni þarf að hafa dug og þekkingu. Tala tungum og töfra viðmælendur. Allt þetta kom fram í stórgóðu erindi Guðna Th. Jóhannessonar sagnfræðings í Odda í dag. Sjálfur er hann volgur og kominn með forsetabindi.
Mín skoðun er að í tíð Ólafs Ragnars sem forseta hafi embættið afhelgast af sameiningartákninu og störf forsetans helgist oft af umdeildum ákvörðunum. Ólafur Ragnar hefur þannig "stækkað" embættið en um leið gert það umdeildara.
Þess vegna munu kjósendur spyrja sig hvort frambjóðendur valdi embættinu í átakasjó stjórnmálanna og um leið hasta á ölduganginn.
Ég held að ég hafi fundið einn slíkan í dag.
Athugasemdir