365 ástæður

Á samfélagsmiðlum er vitnað í Bólu-Hjálmar:
er dyggðum snauðir fantar
safna auð með augun rauð
en aðra brauðið vantar.
- Bólu-Hjálmar 1796-1875 -
Áfram birtast upplýsingar úr Panamaskjölunum og nú er skrifað um Baugsveldið. Baugur samanstendur í upphafi af Hagkaupsauði og Bónusauði. Frumkvöðlarnir Pálmi í Hagkaup og Jóhannes í Bónus sköpuðu sinn auð með elju. Báðir vildu hag viðskiptavina sem bestan og eitt sinn heyrði ég hagfræðing telja að með aðkomu Bónusverslunnar hefði kaupmáttur launþega aukist um 5%.
Þetta er gott og blessað og örugglega rétt.
Það er svo með annarri kynslóðinni þegar auðurinn safnast að það verður flókið að eiga peninga á Íslandi eins og forsætisráðherra sagði svo eftirminnilega.
Þáverandi eigendur Haga voru ekki beint í pólitík. En nærvera þeirra gat skapað skugga og ekki var vinagarður milli Morgunblaðsins og Bónusarfeðga.
En þetta er segin saga sem oftast var mótuð í réttarsölum talið í áratugum.
Nú er öll sagan sögð og í raun kemur ekki á óvart að skattaskjól voru notuð.
Voru notuð af því það var hægt.
Með auði koma völd og til að viðhalda völdum þarf að eiga gjallarhorn.
Það eiga Baugs-menn og konur. Þau fjölmiðlarisann 365 sem þekur nær allt kallsvæðið nema það sem útgerðablaðið ræður ríkjum.
Þess vegna er einfaldast að vísa í DV, Fréttablaðið eða jafnvel Eyjuna.
Það eru því 365 ástæður fyrir því að traust og tiltrú fólks á fjölmiðlum auðmanna þverr.
Bestu rökin eru þau að þeir "safna auð með augun rauð."
Athugasemdir