Frosti Sigurjónsson skipaður formaður starfshóps um sértækar aðgerðir til íbúðarkaupa

Ásmundur Einar Daðason félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra hefur skipað Frosta Sig­ur­jóns­son for­mann starfs­hóps sem útfæra á sér­tækar aðgerðir til að auð­velda ungu og tekju­lágu fólki að kaupa sér íbúð­ar­hús­næði.

Frosti Sigurjónsson.
Frosti Sig­ur­jóns­son. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Ásmundur Einar Daðason félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra hefur skipað Frosta Sig­ur­jóns­son for­mann starfs­hóps sem útfæra á sér­tækar aðgerðir til að auð­velda ungu og tekju­lágu fólki að kaupa sér íbúð­ar­hús­næði. Hópurinn er stofn­aður í fram­haldi af til­lögu ráð­herra sem sam­þykkt var á fundi rík­is­stjórnar nýlega.

Þetta kemur fram í frétt vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins.

Í starfs­hópnum eiga einnig sæti full­trúar frá Íbúða­lána­sjóði, fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu og for­sæt­is­ráðu­neyt­inu.

Í frétt­inni kemur jafn­framt fram að í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar segi að ráð­ist verði í aðgerðir til að lækka lækka þrösk­uld ungs fólks og tekju­lágra inn á hús­næð­is­mark­að­inn og end­ur­skoða í því skyni stuðn­ings­kerfi hins opin­bera þannig að stuðn­ing­ur­inn nýt­ist fyrst og fremst þessum hópum. Meðal ann­ars verði skoð­aðir mögu­leikar á því að nýta líf­eyr­is­sparnað til þessa.

„Vel­ferð­ar­ráðu­neytið í sam­vinnu við Íbúða­lána­sjóð hefur um skeið unnið að kort­lagn­ingu ýmissa úrræða sem stjórn­völd í nágranna­löndum okkar bjóða tekju­lágum á hús­næð­is­mark­aði og hafa gefið góða raun. Hafa sjónir beinst sér­stak­lega að til­teknum leiðum sem farnar hafa verið í Sviss og Noregi og gef­ist vel,“ segir í frétt­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár