Brynjar: Wintris-málið óþægilegt fyrir ríkisstjórnarsamstarfið

Þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins segir ólík­legt að sjálf­stæð­is­menn tjái sig fyrr en þeir hafa náð að funda um Wintris-málið.

Brynjar Níelsson þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins segir að Wintris-málið sé vissu­lega óþægi­legt fyrir rík­is­stjórn­ar­sam­starf Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks, sér­stak­lega í ljósi þess sem á undan er gengið varð­andi samn­inga við kröfu­hafa og afnám hafta. Þetta kemur fram á vef RÚV.

Brynjar segir að það sé ólík­legt að þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins muni tjá sig efn­is­lega um málið fyrr en þing­flokk­ur­inn hafi fundið um málið. Það sé nauð­syn­legt að fá allar stað­reyndir upp á borðið áður en hægt sé að taka afstöðu, en ljóst sé að mjög skiptar skoð­anir séu á mál­inu innan þing­flokks Sjálf­stæð­is­flokks­ins. RÚV greinir frá því að reynt hafi verið að fá við­töl við nokkra þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins í morgun en eng­inn þeirra hafi viljað veita við­tal um málið.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra rauf í gær þögn sína um málið með við­tölum í Frétta­blað­inu og á Útvarpi Sögu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Munurinn á stað­reyndum og spuna

Í morgun birti Kjarninn frétta­skýr­ingu sem unnin er upp úr úrskurði yfir­skatta­nefndar í máli hjón­anna Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur. Í henni eru engar álykt­anir dregnar heldur sagt frá þeim stað­reyndum sem fram koma í þeim úrskurði. Þær stað­reyndir eru eft­ir­far­andi: Þann 13. maí 2016 skrif­aði umboðs­maður hjón­anna bréf til rík­is­skatt­stjóra. Þar óskaði hann eftir því að skatt­fram­töl...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár