May telur allur líkur á að ríkisstjórn hennar standi af sér vantrauststillöguna

Í kvöld munu bresk­ir þing­menn greiða at­kvæði um van­traust á rík­is­stjórn Th­eresu May, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, aðeins sól­ar­hring eft­ir að þingið hafn­aði Brex­it-samn­ingi stjórn­ar­inn­ar og Evr­ópu­sam­bands­ins.

Breska þingið kolfelldi Brexit- samning Theresu May forsætisráðherra Bretlands, í gærkvöldi. Samningurinn var fellur með 230 atkvæðum, 432 þingmenn greiddu gegn samningnum en 202 þingmenn með. Forsætisráðherra Bretlands hefur ekki beðið stærri ósigur í breska þinginu í heila öld. Jeremy Corbyn, leiðtogi Verkamannaflokksins, lagði fram tillögu um vantraust á ríkisstjórn May í kjölfar niðurstöðunnar. Kosið verður um vantrauststillöguna klukkan sjö að staðartíma í kvöld.

Útgöngudagurinn nálgast

Nú ríkir ekki einungis óvissa um stjórnartíð Theresu May heldur einnig um útgöngu Bretlands. Bretar ganga að óbreyttu úr Evrópusambandinu 29. mars næstkomandi, hvort sem búið verður að ganga frá samningi um útgönguna eða ekki. Samkvæmt breskum fjölmiðlum er þó möguleiki að útgöngunni verði frestað fyrst að enginn samningur liggur fyrir og afar fáir innan breska þingsins og Evrópusambandsins vilji samningslausa útgöngu.

„Atkvæðagreiðsla kvöldsins segir okkur ekkert um hvað þingið vill. Ekkert um hvernig þingið eða hvort þingið ætlar að virða þá ákvörðun sem breska þjóðin tók í þjóðaratkvæðagreiðslunni sem þingið boðaði,“ sagði May eftir atkvæðagreiðsluna í gærkvöldi.

Samningurinn hefur mætt mikilli andstöðu

[links]Upp­haf­lega átti Ther­esa May að leggja samn­ing­inn fyrir breska þingið í des­em­ber en þegar May var ljóst að þingið myndi fella samn­ing­inn þá frestaði hún atkvæða­greiðsl­unni. Samn­ing­ur­inn hefur mætt mik­illi and­stöðu í breska þing­inu, bæði í röðum minni­hluta og meiri­hluta. Þá hafa ráð­herrar í rík­is­stjórn­inni sagt af sér vegna óánægju með fram­göngu mála. Þing­menn Íhalds­flokks­ins hafa sömu­leiðis gert til­raun til þess að steypa Ther­esu May úr leið­toga­sæti flokks­ins með atkvæða­greiðslu um van­traust.

Ein aðal hindr­unin í samn­ingnum er hvernig landa­mærum Írlands, sem er í Evrópusambandinu, við Norð­ur- Írland, sem er hluti af Bret­landi, verði háttað efir útgöng­una. Bæði Bretar og Evr­­ópu­­sam­­bandið vilja forð­­ast í lengstu lög að koma upp sjá­an­­legu landamæra­eft­ir­liti þar. En sam­kvæmt samningnum munu Norður-Írar þurfa að halda í stærri hluta af reglu­verki innri mark­aðar og tolla­­banda­lags ESB en önnur svæði Bret­lands til þess að koma í veg fyrir sýn­i­­lega landamæra­­gæslu á milli Norð­­ur­-Ír­lands og Írlands.

May hélt ræðu í breska þingin áður en atkvæða­greiðslan fór fram og sagði að líklegra væri að ekk­ert yrði af úrgöngu Breta úr Evr­ópu­sam­band­inu en að þeir myndu ganga úr sam­band­inu án samn­ings. Þá sagði hún það verða til þess að þjóðin myndi missa allt traust á stjórn­mála­mönnum og stjórn­mál­um. „Samn­ing­ur­inn er ekki full­kom­inn, hann er vissu­lega mála­miðl­un,“ sagði hún. „En þegar sögu­bæk­urnar verða skrif­aðar mun fólk líta á ákvörðun þings­ins og spyrja hvort að við fram­fylgdum nið­ur­stöðu þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unnar eða hvort við brugð­umst bresku þjóð­inn­i,“ sagði May.

Telja að ríkisstjórn May muni standa af sér vantraust

Stóru orðin dugðu þó ekki til og samn­ingnum var hafnað af breska þing­inu í gær­kvöldi og því þarf ríkistjórn May að berjast fyrir lífi sínu í kvöld. Að sögn breskra fjöl­miðla er þó ekki búist við að van­traust­s­til­lagan nái fram að ganga því sumir þeirra sem greitt hafi atkvæði gegn Brex­it-­samn­ingnum hafi gefið til kynna að þeir ætli að styðja stjórn­ina áfram. Lýð­ræð­is­legi sam­bands­flokk­ur­inn á Norð­ur­-Ír­landi, DUP, hefur meðal annars lýst því yfir að hann ætli að styðja Ther­esu May, þó flokk­ur­inn hafi greitt atkvæði gegn samn­ingnum í gær­kvöld.

Spurningin er hins vegar hvort þessi rúmi þriðjungur flokksmanna May sem felldi samninginn í gærkvöldi muni standa vörð um leiðtoga sinn. Samkvæmt frétt BBC má skipta þeim Íhaldsmönnum sem höfnuðu samningnum í tvær fylkingar. Öðrum hlutanum þykir samningurinn fela í sér of náið samband við Evrópusambandið en hinn hlutinn eru þeir þingmenn sem eru hlynntir Evrópusambandinu. Talið er að þingmenn Íhaldsflokksins gætu stutt ríkisstjórninstjórnina af ótta við að Verkamannaflokkurinn næði völdum í nýrri minnihluta- eða samsteypustjórn eða þá eftir nýjar kosningar. Í nýrri könnun sem birt var í fyrradag mælist Verkamannaflokkurinn með meira fylgi en Íhaldsflokkurinn.

May þarf stuðning 320 þingmanna til að standa af sér vantraustið en samkvæmt heimildum BBC er talið að fylking harðra Brexit-sinna einnig styðja stjórnina. Saman hafa Íhaldsflokkurinn og DUP 327 sæti þannig að lítið má út af bregða.

Hvað gerist næst?

Ef spá breskra fjöl­miðla geng­ur ekki eft­ir og van­traust­stil­lag­an verður samþykkt ligg­ur ljóst fyr­ir að breska rík­is­stjórn­in er fall­in. Þá hafa flokk­ar á þing­inu tvær vik­ur til að mynda rík­is­stjórn. Ef það tekst ekki verður boðað til kosn­inga, en að minnsta kosti þurfa 25 dagar að líða frá því að boðað er til kosninga og þar til þær fara fram.

Í ræðu May í breska þinginu í dag sagðist að hún væri fullviss um að hún muni standa tillöguna af sér. Hún sagði jafnframt að ef svo færi þá muni hún snúa aftur á þingið í næstu viku með aðgerðaáætlun um næstu skref í útgöngu Breta úr Evrópusambandinu.

Ef Bretar óska eftir að útgöngutímabilið verði framlengt munu aðildarríki ESB koma saman á sérstökum fundi þar sem tekin verður afstaða til lengra tímabils. Leiðtogar Evrópusambandsins hafa ekki útilokað að lengja ferlið fram á sumar og eru víst byrjaðir að undirbúa það að fresta útgöngu Bretlands eftir að ljóst þótti að samningurinn yrði ekki samþykktur í breska þinginu. Ekki er vitað hversu langur frestur yrði gefinn en ólíklegt þykir að hægt verði að fresta samningnum lengur en til 30. júní en þá kemur nýtt Evrópuþing saman.

Michel Barnier, aðalsamningamaður Evrópusambandsins, sagði í morgun að hættan á að Bretar færu úr sambandinu samningslausir hefði aldrei verið meiri. Áhersla yrði lögð á að koma í veg fyrir það. Pierre Moscovici, efnahags- og fjármálastjóri Evrópusambandsins, tók í sama streng. Moscovici sagði að í atkvæðagreiðslunni á breska þinginu í gær, þegar Brexit-samningnum var hafnað, hefði það komið skýrt fram hvað Bretar vildu ekki. Nú yrðu þeir að segja hvað þeir vildu, en tíminn væri naumur.

Margir evrópskir stjórnmálaleiðtogar hafa í morgun tjáð sig um niðurstöðu atkvæðagreiðslunnar. Mark Rutte, forsætisráðherra Hollands, og Giuseppe Conte, forsætisráðherra Ítalíu, sögðu í morgun að Evrópusambandið væri að búa sig undir alla hugsanlega möguleika. Angela Merkel segir að það sé enn tími til að semja en hins vegar þurfi að bíða átekta og sjá hvaða skref Th­eresa May, for­sæt­is­ráðherra Bret­lands, hyggst stíga, nái hún að standa af sér van­traust­stil­lögu gegn rík­is­stjórn henn­ar sem greidd verða at­kvæði um á breska þing­inu í kvöld

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár