Brexit-samningi May hafnað í breska þinginu

Næstu skref í Brexit-mál­inu eru óljós. Van­traust­til­laga er lík­leg.

Samn­ing­ur­inn um útgöngu Breta úr Evr­ópu­sam­band­inu, Brexit, var felldur í breska þing­inu í kvöld með yfir­gnæf­andi meiri­hluta atkvæða. Samtals voru 432 á móti samn­ingnum en 202 studdu hann.

Nið­ur­staðan er áfall fyrir Theresu May for­sæt­is­ráð­herra og rík­is­stjórn hennar, og setur Brexit-samn­inga­við­ræð­urnar á byrj­un­ar­reit á nýjan leik. Samkvæmt lögum í Bret­landi eiga Bretar að ganga úr Evr­ópu­sam­band­inu 29. mars næst­kom­andi klukkan 11:00, en Theresa May flutti frum­varp í þing­inu sem var sam­þykkt í lög, þegar samn­inga­við­ræð­urnar voru að hefj­ast.

Hún vildi með því setja skýran tímara­mma fyrir við­ræð­urnar.

Innan Íhalds­flokks­ins breska, flokks for­sæt­is­ráð­herra, hefur verið mikil óein­ing, sem sést einna best á því að 118 full­trúar flokks­ins greiddu atkvæði gegn Brexit-samn­ingum.

Van­traust­til­laga frá Verka­manna­flokknum í stjórn­ar­and­stöðu er lík­leg á næst­unni, en Jeremy Corbyn, leið­togi flokks­ins, hefur þegar látið hafa eftir sér að rík­is­stjórn May sé búin að vera. Atkvæða­greiðsla um van­traustið fer fram á morgun, sam­kvæmt því sem kemur fram á vef BBC.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár