Bretar geta ákveðið einhliða að hætta við Brexit

Samkvæmt úrskurði Evr­ópu­dóm­stóls­ins geta aðild­ar­ríki hætt við ákvörðun sína um að yfir­gefa Evr­ópu­sam­bandið án sam­þykkis ann­arra aðild­ar­ríkja. Það þýðir að breska þingið getur ákveðið að hætta við Brexit.

Bretar geta hætt við yfir­gefa Evr­ópu­sam­bandið án þess að fá sam­þykki ann­arra aðild­ar­ríkja Evr­ópu­sam­bands­ins sam­kvæmt úrskurði Evr­ópu­dóm­stóls­ins sem birt var í morgun. Frá þessu er greint á vef Guardian.

Í úrskurð­inum kemur fram að hvert aðild­ar­ríki getur aft­ur­kallað 50. grein Lissa­bonsátt­mál­ans án sam­þykkis frá öðrum aðild­ar­ríkjum. Dóm­stól­inn hafn­aði þeim rökum, sem sett höfðu verið fram af bresku rík­is­stjórn­inni og fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins, að til þess að aft­ur­kalla útgöngu þá þyrftu öll aðild­ar­ríkin að sam­þykkja það fyrst. Í sátt­mál­anum snýr 50.greinin að því tveggja ára ferli sem hefst þegar aðild­ar­ríkin ákveða að yfir­gefa sam­bandið.

Úrskurðurinn birtur fyrir kosningar í þinginu á morgun

[links]Evr­ópu­dóm­stól­inn birti nið­ur­stöðu sína í morgun í tæka tíð fyrir atkvæða­greiðslu breska þings­ins á morgun um Brexit-samn­ing Theresu May, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands. Ólíklegt þykir að samn­ing­ur­inn verði sam­þykktur í þing­inu. Þessi úrskurður Evr­ópu­dóm­stóls­ins gæti þýtt að þrýst yrði á aðra þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um Brexit. [adspot]

Samkvæmt dóm­stólnum verður þó ákvörðun um aft­ur­köllun að fylgja þeim lýð­ræð­is­legum ferlum sem eru við lýði í hverju landi fyrir sig. Í til­viki Bret­lands þýðir það að ákvörð­unin um að hætta við að yfir­gefa Evr­ópu­sam­bandið yrði að vera sam­þykkt í breska þing­inu. Breska þingið þyrfti síðan skrif­lega að til­kynna Evr­ópu­sam­band­inu að hætt hefði verið við ákvörð­un­ina að yfir­gefa sam­bandið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár