Viðskiptaráð vill að frjálslyndir berjist gegn auknum umsvifum hins opinbera

Skattar hafa hækkað und­an­farin tíu ár, bæða hvað varðar tekju­skatt ein­stak­linga og fyr­ir­tækja­skatt. Við­skipta­ráð segir frjáls­lyndar áherslur hafa heillt á litið orðið undir und­an­farin ár.

Frjáls­lyndar áherslur, á mæli­kvarða rík­is­um­svifa, hafa heilt á litið orðið undir und­an­farin ár. Þetta er mat Við­skipta­ráðs sem kemur fram í frétt þess.

Ráðið fagnar umræðu síð­ustu daga, þar sem mikið hafi verið rætt um það hvaða flokkar raun­veru­lega standi fyrir frjáls­lyndi, og aug­lýsir um leið eftir að fleiri sýni frjáls­lyndi í verki. „Verð­mætin verða ekki til með öflun skattekna – verð­mætin verða til í atvinnu­líf­inu. Hvetur Við­skipta­ráð þá flokka sem gefa sig út fyrir að standa fyrir frjáls­lyndi að standa betur vörð um raun­veru­lega verð­mæta­sköpun og berj­ast gegn auknum umsvifum hins opin­bera,“ segir í frétt­inni.

[links]Jafn­framt kemur fram að skattar hafi hækkað und­an­farin tíu ár, sama hvort horft sé á álagn­ingar ein­stak­linga eða fyr­ir­tækja. „Fylgi­fiskur þess­ara skatta­hækk­ana er aukin umsvif hins opin­bera, bæði ríkis og sveit­ar­fé­laga, hér á landi. Heild­ar­um­svif hins opin­bera hafa auk­ist und­an­farin ár en heild­ar­tekjur rík­is­sjóðs árið 2017 námu 43 pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu sam­an­borið við 35 pró­sent 30 árum fyrr. Með öðrum orðum er leitnin sú að ríkið tekur til sín hærra hlut­fall af verð­mæta­sköpun lands­manna.

Heild­ar­um­svif ríkis og sveit­ar­fé­laga hafa ekki ein­ungis auk­ist heldur hafa tekjur á mann auk­ist gríð­ar­lega und­an­farin ár og ára­tugi. Tekur hið opin­bera til sín nærri tvö­falt meiri tekjur af hverjum íbúa heldur en fyrir 30 árum síðan að teknu til­liti til verð­bólgu,“ segir í frétt­inni.

Eins og fjallað var um í leið­ara á Kjarn­anum í gær þá kemur fram í skýrslu hag­deildar Alþýðu­sam­bands Íslands (ASÍ), sem birt var í ágúst 2017 að skatt­byrði hefði auk­ist í öllum tekju­hópum hér­lendis frá árinu 1998 til loka árs 2016. Aukn­ingin væri lang­­mest hjá tekju­lægstu hóp­un­um, mun­­ur­inn á skatt­­byrði tekju­lægstu hópanna og þeirra tekju­hærri hefur minnkað og dregið hefur úr tekju­­jöfn­un­­ar­hlut­verki skatt­­kerf­is­ins. Kaup­mátt­­ar­aukn­ing síð­­­ustu ára hefur þannig síður skilað sér til launa­­fólks með lægri tekjur en þeirra tekju­hærri vegna vax­andi skatt­­byrð­i.

Það liggur því fyrir að skatt­byrði hefur auk­ist á umræddu tíma­bili. Full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins sat í fjár­mála­ráðu­neyt­inu allt þetta tíma­bil ef und­an­skilin eru árin 2009 til 2013.

Í fjár­lögum árs­ins 2018 kemur fram að tekju­skattur sem ein­stak­lingar greiða verði 14,1 millj­örðum krónum hærri í ár en hann var í fyrra. Þá aukast skatt­greiðslur sem fyr­ir­tækin í land­inu greiða í tekju­skatt um 7,4 millj­arða króna. Bankar lands­ins greiða alls kyns við­bót­ar­skatta sem fjár­mála­fyr­ir­tæki í öðrum löndum greiða ekki og fjár­magnstekju­skattur var hækk­aður úr 20 í 22 pró­sent um síð­ustu ára­mót.

Ýmiss konar háar álögur eru lagðar á bif­reið­ar­eig­end­ur, hús­næð­is­kaup­endur eru látnir greiða svo­kallað stimp­il­gjald, tóbaksnot­endur greiða millj­arða króna í skatta fyrir fíkn sína og þeir sem drekka áfengi munu skila 18,6 millj­örðum krónum í áfeng­is­gjöldum til rík­is­sjóðs á yfir­stand­andi ári. Þá er auð­vitað ótalið að allir 16 til 70 ára þurfa að greiða útvarps­gjald til RÚV og sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki lands­ins greiða sér­stök veiði­gjöld í rík­is­sjóðs. Sam­tals verða tekjur rík­is­sjóðs 840 millj­arðar króna í ár, sam­kvæmt fjár­lög­um. Það er 42 pró­sent fleiri krónur sem inn­heimtar verða í rík­is­kass­ann en skil­uðu sér þangað 2013.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

skattamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár