Mynd: Bára Huld Beck

Getur aldrei verið sjálfstætt markmið flokks að lifa af

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks, segir nýja flokka koma og í slíku umróti skipti flokkar sem feyk­ist ekki um í „örvænt­ing­ar­fullri leit að vin­sældum“ máli.

„Hið póli­tíska lands­lag hefur breyst mikið á 90 árum, en senni­lega hafa breyt­ing­arnar orðið hvað mestar á und­an­förnum ára­tug. Ný fram­boð koma og fara líkt og dæg­ur­fl­ugur. Flokkar eru stofn­aðir um eitt mál eða sér­hags­muni ákveð­ins hóps. Í slíku umróti skiptir miklu að þeir flokkar sem eiga djúpar rætur í sögu þjóðar og breiðan hóp fylg­is­manna standi í fæt­urna, en feyk­ist ekki undan í örvænt­ing­ar­fullri leit að vin­sældum.“

Þetta segir Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, íaðsendri grein í Frétta­blað­inu í dag í til­efni af 90 ára afmæli flokks­ins.

Breyt­ing­arnar sem Bjarni vísar í að hafi orðið á síð­asta ára­tug fela í sér algjöra kúvend­ingu á íslenska flokka­kerf­inu frá árinu 2013. Sögu­lega hafa fjórir flokkar verið und­ir­staðan í íslenskum stjórn­mál­um. Kerfið sem var við lýði hér­lendis frá lýð­veld­is­stofnun og fram á eft­ir­hrunsárin er oft kallað 4+1 kerfið. Það sam­an­stóð af flokkum sem í dag heita Sjálf­stæð­is­flokkur, Fram­sókn­ar­flokkur, Sam­fylk­ing og Vinstri græn og oft einum tíma­bundnum til við­bótar, sem end­ur­spegl­aði með ein­hverjum hætti stemmn­ingu hvers tíma. Dæmi um það var til dæmis Banda­lag jafn­að­ar­manna, Kvenna­list­inn, Borg­ara­flokkur­inn, Þjóð­vaki og Frjáls­lyndi flokk­ur­inn.

Gjör­breyt­ing hefur orðið á hinu póli­tíska kerfi frá kosn­ing­unum 2013, en í þeim fór sam­an­lagt fylgi hefð­bundnu flokk­anna fjög­urra datt niður í 74,9 pró­sent. Í kosn­ing­unum 2016 féll það svo niður í 62 pró­sent og 65 pró­sent ári síðar. Í kosn­ing­unum 2017 fjölg­aði flokk­unum sem eiga full­trúa á Alþingi um einn. Þeir eru nú átta og hafa aldrei verið fleiri.

Skoð­ana­kann­anir benda til þess að meiri líkur séu á því að enn einn flokk­ur­inn myndi bæt­ast við flór­una ef kosið yrði í dag en að flokk­unum á þingi fækk­aði. Fram­tíðin virð­ist vera átta til níu flokka Alþingi. Í síð­ustu könn­unum mælist fylgi gamla fjór­flokks­ins 59-61 pró­sent.

Getur aldrei verið sjálfstætt markmið að lifa af

Bjarni fer um víðan völl í grein­inni. Hann fjallar um hvaðan Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn kemur, hvað hann hefur gert og hvert hann stefnir. Bjarni segir til­veru flokks­ins byggja á því að rækta sam­bandið við almenn­ing og eiga við hann erindi. „Til þess þarf að slípa og móta hug­myndir í takt við nýja tíma og áskor­anir – skapa sýn til fram­tíðar. Það getur aldrei verið sjálf­stætt mark­mið fyrir stjórn­mála­flokk að lifa af í umróti sam­tím­ans. Stjórn­mála­flokkur sem hefur engan annan til­gang verður aldrei hreyfi­afl breyt­inga – verður aldrei kjöl­festa sem öll sam­fé­lög þurfa á að halda.“

Í grein Bjarna er bent á að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er ein stærsta fjölda­hreyf­ing lands­ins og að á lands­fundum komi saman full­trúar allra sjálf­stæð­is­fé­lag­anna, Þar sé oft dug­lega tek­ist á um mál­efnin og kom­ist að nið­ur­stöðu sem flestir geta sætt sig við. „Þetta hefur verið aðals­merki okkar sjálf­stæð­is­manna, að geta tek­ist á um stefnu­málin. Styrk­ur­inn felst í því að virða nið­ur­stöðu meiri­hlut­ans og standa þétt saman í bar­átt­unni. Við, kjörnir full­trúar flokks­ins, sækjum mik­inn kraft og stuðn­ing í almenna flokks­menn sem hafa ítrekað sýnt að þegar á þarf að halda stendur þeim eng­inn á sporði. Það er mark­mið okkar sjálf­stæð­is­manna að þótt flokk­ur­inn eld­ist gangi hann stöðugt í end­ur­nýjun líf­daga. Við treystum ungu fólki til trún­að­ar­starfa og teljum mik­il­vægt að full­trúar flokks­ins end­ur­spegli breitt bak­land og fjöl­breyti­leika. Þannig höfum við lagt áherslu á að jafna hlut karla og kvenna í trún­að­ar­stöðum. Árang­ur­inn á sveit­ar­stjórn­ar­stig­inu er sér­stak­lega ánægju­legur, en alls sitja 57 konur í sveit­ar­stjórnum fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn, eða um helm­ingur allra full­trúa okkar.“

Á þingi er staða kynj­anna innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins hins vegar ekki jafn jöfn. Af 16 þing­mönnum hans eru fjórar konur. Sem stendur er ein þeirra ráð­herra.

Segir stjórnmálaflokka ekki mega hræðast breytingar

Að Sjálf­stæð­is­flokknum hefur verið sótt frá úr ýmsum áttum að und­an­förnum. Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, utan­rík­is­ráð­herra og einn þeirra sem er hvað oft­ast nefndur sem lík­legur for­manns­fram­bjóð­andi kjósi Bjarni Bene­dikts­son frá að hverfa í nán­ustu fram­tíð, ræddi þá stöðu nýverið í sjón­varps­þætt­inum Mannamál á Hring­braut. Þar sagði hann m.a.: „Það sem er nýtt og við höfum aldrei haft er þú ert með fyrrum for­menn sem eru svona gagn­rýnir á Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Eru bara að ham­ast í því mjög lengi. Við erum ann­ars vegar með Þor­stein Páls­son, sem er far­inn í annan flokk, og svo Davíð Odds­son.“

Þor­steinn Páls­son, sem var for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins 1983 til 1991, var á meðal þeirra Sjálf­stæð­is­manna sem gengu úr flokknum eftir að aðild­ar­um­sókn Íslands að Evr­ópu­sam­band­inu var dregin til baka án þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu árið 2014. Þor­steinn sagði að svik á lof­orði um slíka þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu, sem gefið hafði verið í aðdrag­anda kosn­inga 2013, hafi verið „ein stærstu svik sem gerð hafa verið í íslenskum stjórn­mál­u­m“. Þor­steinn kom síðar að stofnun Við­reisnar og hefur verið ötull gagn­rýn­andi á störf Sjálf­stæð­is­flokks­ins á síð­ustu árum. Gagn­rýni Þor­steins hefur að megin stefi verið sú að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sé ekki nægi­lega alþjóð­legur og of íhalds­sam­ur.

Davíð Odds­son var for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins frá 1991 til 2005 og hefur síð­ast­lið­inn tæpan ára­tug verið rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins. Úr því sæti hefur hann iðu­lega gagn­rýnt Sjálf­stæð­is­flokk­inn fyrir að vera ekki nægi­lega íhalds­saman og of alþjóða­sinn­að­an.

Davíð Oddsson var formaður Sjálfstæðisflokksins frá 1991 til 2005. Síðustu ár hefur hann gagnrýnt flokkinn harkalega.
Davíð Oddsson var for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins frá 1991 til 2005. Síðustu ár hefur hann gagn­rýnt flokk­inn harka­lega.

Sú gagn­rýni náði ákveðnu hámarki nýverið þegar Davíð skrif­aði leið­ara í Morg­un­blaðið sem í stóð að stjórn­mála­flokkar væri ekki eilífir og að það þyrfti ekki endi­lega að vera harms­efni ef Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hætti að vera til. Í kjöl­farið líkti Davíð Sjálf­stæð­is­flokknum við danska Íhalds­flokk­inn, sem eitt sinn skipti veru­legu máli en er nú að berj­ast við að fá þrjú pró­sent atkvæða. Mál­flutn­ingur Dav­íðs und­an­farin miss­eri hefur átt mun meira sam­eig­in­legt með því sem t.d. Mið­flokkur Sig­mundar Davíð Gunn­laugs­sonar stendur fyrir en áherslum margra í Sjálf­stæð­is­flokkn­um. Síð­ustu dæmi slíks eru afstaðan til þriðja orku­pakk­ans svo­kall­aða og nýrra þung­un­ar­rofslaga, en hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­manna kaus með þeirri lög­gjöf sem var auk þess lögð fram sem stjórn­ar­frum­varp og sam­þykkt með miklum meiri­hluta atkvæða á þingi.

Bjarni fjallar bæði um meinta íhalds­semi Sjálf­stæð­is­flokks­ins og svarar gagn­rýni á skort hans á alþjóða­hyggju í grein sinni. Þar kemur skýrt fram að Bjarni sjálfur telur flokk­inn ekki aft­ur­halds- eða kyrr­stöðu­flokk eins og sumir gagn­rýnendur hans sem gengu til liðs við Viðreisn telja hann vera. „Stjórn­mála­flokkur sem er á flótta undan sam­tíð­inni, hræð­ist breyt­ingar, forð­ast nýja hugsun og hleypur undan áskor­unum fram­tíð­ar­innar, mun visna upp. Slíkur stjórn­mála­flokkur hefur Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn aldrei verið. Þvert á móti,“ segir í grein Bjarna.

Þá segir Bjarni að alþjóða­við­skipti og alþjóð­leg sam­vinna hafi verið og verði alltaf einn af horn­steinum sjálf­stæð­is­stefn­unnar. Mark­miðið í upp­hafi var að Íslend­ingar yrðu þjóð á meðal þjóða. „Þannig hefur Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn rutt braut­ina fyrir það alþjóða­sam­starf sem skipt hefur þjóð­ina hvað mestu. Ólafur Thors var for­sætis- og utan­rík­is­ráð­herra þegar Ísland sótti um aðild að Sam­ein­uðu þjóð­unum, Bjarni Bene­dikts­son var utan­rík­is­ráð­herra þegar Ísland gekk í NATO og for­sæt­is­ráð­herra þegar við gerð­umst aðilar að EFTA. Davíð Oddsson var for­sæt­is­ráð­herra þegar samn­ing­ur­inn um Evrópska efna­hags­svæðið var gerður. Afstaða okkar sjálf­stæð­is­manna til alþjóð­legrar sam­vinnu hefur alltaf verið skýr og ein­örð. Við höfum staðið vörð um full­veldið og nýtt þá mögu­leika sem sjálf­stæðið gefur okkur í alþjóð­legu sam­starfi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár