Frjáls án farða

Söng­konan Alicia Keys ákvað að hætta að nota farða og voru það ekki síst við­brögðin sem vöktu athygli. Kjarninn kann­aði ástæður söng­kon­unnar og leit yfir sögu förð­unar og and­lits­máln­ingar til þess að skilja betur hvaðan þessi iðja á rætur sínar að rekja.

Söngkonan Alicia Keys á MTV tónlistarhátíðinni. Hún steig fram og opinberaði þá ákvörðun að hætta að nota farða.
Söng­konan Alicia Keys á MTV tón­list­ar­há­tíð­inni. Hún steig fram og opin­ber­aði þá ákvörðun að hætta að nota farða. Mynd: EPA

Söng­konan Alicia Keys gekk eftir rauða dregl­inum á MTV tón­list­ar­há­tíð­inni í síð­ustu viku án farða og við­brögðin létu ekki á sér standa á sam­fé­lags­miðlum. Margir gagn­rýndu hana fyrir þessa ákvörðun en aðrir studdu hana. Sumir efuð­ust jafn­vel um sann­leiks­gildi þess að hún hafi í raun verið ómáluð, aðrir töldu hana vera að setja sig á háan hest og enn aðrir klöpp­uðu henni lof í lófa. Með því að hætta að nota farða þá seg­ist hún vilja hrinda af stað bylt­ingu og breyta hug­ar­fari gagn­vart við­horfum til útlits kvenna.

Umræðan afhjúpaði í raun þær skorður sem konum eru settar varð­andi útlit. Í raun­inni má líta svo á að bara það að fólk taki afstöðu til þess, hvort ein­hver sé farð­aður eða ekki, sé áhuga­vert út af fyrir sig. Söng- og leikkonur hafa í gegnum tíð­ina verið eins konar tákn­myndir fyrir hvernig konur eigi að líta út. Elizabeth Taylor og Audrey Hepburn eru dæmi þess á 20. öld­inni en þær voru fyr­ir­myndir fyrir konur út um allan heim. Förðun og and­lits­máln­ing á sér þó langa sögu og djúpar rætur og við­horfin til þess­ara athafna hafa verið mis­mun­andi eftir tíma­bilum og menn­ing­ar­heimum.

Fann fyrir mikilli pressu

Þessi ákvörðun söng­kon­unnar að hætta að nota farða var ekki til­vilj­un­ar­kennd en hún gerði grein fyrir máli sínu í bréfi sem birt­ist á Lenn­y­Letter.com í maí 2016. Hún lýsir þar á grein­ar­góðan hátt þeirri sam­fé­lags­pressu sem ungar stúlkur finna mjög snemma fyrir á lífs­leið­inni og eru undir fram eftir aldri.

Keys vísar í eigin reynslu og segir frá því hvernig var að vera í sviðs­ljós­inu sem ung söng­kona. Hún seg­ist hafa verið óör­ugg og notað farða til að fela óör­yggið. Þess vegna hafi hún tekið þessa ákvörðun, hún vildi ekki hylja sig lengur. Ekki and­litið, ekki hug­ann, ekki sál­ina, ekki hugs­anir, ekki drauma, ekki erf­ið­leika og ekki til­finn­inga­legan þroska. Hún vildi ekki hylja neitt lengur.

Notkun farða ekki bara fyrir konur

Saga förð­unar er löng en hún er talin vera alla­vega 5000 ára gömul. Á árunum 3000-1500 f.Kr. í Egypta­landi til forna mál­aði fólk af báðum kynjum var­irnar með rauðum lit. Það mál­aði einnig svarta línu í kringum augum en talið er að ástæður þess hafi verið trú­ar­legar, sem og hag­nýtar. Svarti lit­ur­inn varði húð­ina fyrir eyði­merk­ur­sól­inni og við­hélt æski­legu raka­stigi húð­ar­innar. Einnig var talið að lit­ur­inn verði þann sem bar hann einnig fyrir illum öndum eða hinu svo­kall­aða „illa auga“. Þennan sið má sjá á vegg- og högg­myndum þessa tíma.

Fleiri menn­ing­ar­heimar tóku upp and­lits­máln­ingu. Gyðingar, Róm­verjar og Persar not­uðu til að mynda and­lits­máln­ingu í ýmsum til­gangi og í Asíu, Kína og Japan var sér­stök teg­und af svepp borin á húð­ina til þess að koma í veg fyrir öldrun hennar.

Kajal notað til að vernda augun

Á Indlandi er saga förð­unar löng. Fólk þar í landi hefur lengi notað and­lits­máln­ingu, bæði konur og karlar. Slíkt athæfi hefur meira með trú­ar­iðkun og menn­ingu að gera en útlits­kröfur.

Frá fornu fari hafa Ind­verjar málað svartar línur í kringum augun og litað augn­hárin svört með svoköll­uðu kajal en það er það sama og hið afríska og mið-aust­ur­lenska kohl sem unnið er úr antím­onsalla. Enn í dag er kajal notað, til dæmis til að vernda augun fyrir sól. Það er jafn­vel borið á smá­börn til þess að styrkja og vernda augun og fyrir „illum augum“.

Ekki má gleyma bindi, rauða punkt­inum sem Ind­verjar setja eða mála milli augn­anna. Þrátt fyrir að þetta fyr­ir­bæri sé orðið að eins konar tísku­bylgju þá á það sér langa sögu og merk­ingu. Í hindúisma er svæðið milli augn­anna þekkt sem ajna eða „þriðja augað“ en það er orku­stöð sem Ind­verjar trúa að sé mið­punktur and­legrar orku og að í henni sé inn­byggð viska. Þegar mann­eskja, kona eða karl, setur rauða punkt­inn milli augn­anna er hún að auka feg­urð sína og and­lega orku. Nú á dögum er einnig til siðs að nota skraut í stað­inn fyrir rauða punkt­inn.

Einnig hefur verið til siðs í ýmsum menn­ing­ar­heimum að lýsa húð­ina en á mörgum tíma­bilum í gegnum sög­una hefur föl eða ljós húð verið tákn vel­meg­unar. Þetta má sjá enn í dag en á mörgum stöðum í heim­inum má finna svipuð við­horf; því ljós­ari sem húðin er því fal­legri þykir hún. Ýmsar leiðir hafa verið not­aðar til þess að lýsa húð­ina t.d. með því að nota efna­blöndur eða að fara í húð­að­gerðir.

Farði ósmekklegur á öðrum tímabilum í sögunni

Farði hefur oft verið lit­inn horn­auga í vest­rænni menn­ingu. Viktoría drottn­ing lýsti því til dæmis yfir að hann væri ósmekk­legur og óvið­eig­andi og að hann skyldi aðeins nota í leik­sýn­ingum. Farði var þannig tengdur vændi og leik­list. Litið var niður á konur sem förð­uðu sig þannig að eftir var tekið.

Á þessum tíma átti ráð­sett kona að nota heima­gerðan maska úr nátt­úru­legum hrá­efnum eins og höfrum, hun­angi og eggja­hvítu. Til að hreinsa húð­ina átti hún að nota rósa­vatn eða edik. Hún átti að plokka auga­brúnir, nudda lax­er­olíu á augn­hárin, setja hrís­grjónapúður á kinnar og nef og pússa negl­urnar til að fá glansa. Ekki átti að nota vara­lit en þó var borin olía á varir til að gera þær líf­legri. Ýmsar aðferðir hafa þannig verið not­aðar til að ýkja nátt­úru­lega feg­urð á tímum þar sem áber­andi förðun var illa séð.

Förðun og and­lits­máln­ing hefur þannig ekki alltaf verið vel liðin og hefur fólk þurft að gjalda fyrir að mála sig í gegnum tíð­ina. Einnig hafa ýmis eit­ur­efni verið notuð í snyrti- og förð­un­ar­vörur sem hafa valdið alvar­legum auka­verk­unum og jafn­vel var­an­legum afleið­ingum eins og blindu. Mikil notkun snyrti­vara sem inni­héldu blý leiddu í verstu til­fell­unum til dauða.

Karlmenn förð­uðu sig einnig í Englandi fram á 19. öld, þrátt fyrir að það hafi ekki talist mjög almennt. Georg IV eyddi til að mynda fúlgu fjár í snyrti- og förð­un­ar­vörur.

Maskarinn og augnskugginn verður að iðnaði

Bylting varð á Vest­ur­löndum í snyrti­vöru­iðn­að­inum í byrjun 20. aldar. Fram að þeim tíma höfðu konur búið til sinn eigin mask­ara.

Eugène Rimmel fann upp fyrsta mask­ar­ann án eit­ur­efna sem kom á markað árið 1917. Maskar­inn varð svo vin­sæll að í mörgum tungu­málum enn í dag er mask­ari kall­aður „rimmel“. Annar vin­sæll mask­ari var nefndur eftir Mabell, systur upp­finn­inga­manns­ins, T.L. Williams en hann er þekktur í dag sem Maybelline.

Tísku­bylgjur ein­kenna förðun á Vest­ur­löndum allt til dags­ins í dag og er það iðu­lega fræga fólkið, leik- og söng­konur, sem mótar tísk­una. Á fyrri hluta 20. aldar fóru konur að mála sig í auknu mæli. Miklar fram­farir urðu í fram­leiðslu hjá snyrti­vöru­fyr­ir­tækjum og voru kvik­mynda­stjörnur iðu­lega fyr­ir­sætur og fyr­ir­myndir fyrir aðrar konur. Audrey Hepburn var til að mynda vin­sæl leik­kona og fyr­ir­sæta á sjötta og sjö­unda ára­tug síð­ustu aldar en hún var fræg fyrir að mála dökka línu í kringum augun. Þessar dökku línur voru áber­andi í förðun næstu ára­tugi með fjöl­breyttum og lit­uðum augnskuggum og vara­litum.

Snyrti­vöru­iðn­að­ur­inn óx gríð­ar­lega á síð­ustu öld og í dag er hann met­inn á tug millj­arða doll­ara. Úrvalið og magnið af snyrti­vörum sem seldar eru út um allan heim hefur aldrei verið meira og þar af leið­andi pressan að líta út á ein­hvern ákveð­inn hátt.

Opinberun tvískinnungsins

Þessi stutta yfir­ferð yfir sögu förð­unar segir okkur að til­hneig­ingin sé rík að mála and­lit, hvort heldur í trú­ar­legum til­gangi eða í feg­urð­ar­skyni. Tísku­bylgjur ganga yfir mis­mun­andi tíma­bil og móta hegðun fólks. Kröf­urnar sem sér­stak­lega konur standa frammi fyrir á hverjum tíma fyrir sig eru mis­mun­andi eftir því hvernig sam­fé­lags­gerðin er hverju sinni.

Þessi sam­fé­lags­pressa er áber­andi á þeim tímum sem við lifum nú og birt­ist vel í umræð­unni í kringum ákvörðun Aliciu Keys um að hætta að farða sig. Með þess­ari ein­földu ákvörðun hefur hún opin­berað bæði ójafn­rétti og lasið við­horf í sam­fé­lags­gerð Vest­ur­landa. Við­brögðin við ákvörðun hennar hafa sýnt að konum er ekki „frjálst“ að haga lífi sínu eins og þær vilja eða óska. Sami tví­skinn­ungur birt­ist í umræð­unni um búrkur og bik­iní en það er efni í aðra grein.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár