Sigurður Már áfram upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar

Sigurður Már Jónsson
Sigurður Már Jónsson

Sigurður Már Jónsson verður áfram upp­lýs­inga­full­trúi rík­is­stjórn­ar­innar. Hann hefur gengt starf­inu síðan í októ­ber 2013 þegar Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son og ráðu­neyti hans réð hann til starfa.

Starf upp­lýs­inga­full­trúa rík­is­stjórn­ar­innar var búið til árið 2012 í for­sæt­is­ráð­herra­tíð Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur þegar hún leiddi rík­is­stjórn Sam­fylk­ing­ar­innar og Vinstri grænna. Jóhann Hauksson, fjöl­miðla­maður, var fyrstur til þess að gegna þessu starfi en honum var sagt upp af rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs og Sigurður Már ráð­inn í hans stað.

[adspot]

Ráðning upp­lýs­inga­full­trúa rík­is­stjórn­ar­innar er gerð með sömu heim­ild í lögum um Stjórn­ar­ráð Íslands sem gerir ráð­herrum kleift að ráða til sín aðstoð­ar­menn og rík­is­stjórn að ráða þrjá til við­bótar ef þörf krefur. Ráðning upp­lýs­inga­full­trú­ans fellur undir seinni lið þess­arar máls­greinar og er þess vegna einn af þessum þremur sem rík­is­stjórnin getur ráðið handa hverjum ráð­herra „ef þörf krefur“. Bjarni Bene­dikts­son hefur þegar ráðið sér einn aðstoð­ar­mann. Það er Svan­hildur Hólm en hún var einnig aðstoð­ar­maður Bjarna þegar hann var fjár­mála­ráð­herra á síð­asta kjör­tíma­bili.

Áður hafði for­sæt­is­ráðu­neytið upp­lýs­inga­full­trúa sem sá um sam­skipti ráðu­neyt­is­ins við fjöl­miðla eins og tíðkast í öðrum ráðu­neytum á Íslandi. Samkvæmt skipu­riti for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins heyra aðstoð­ar­menn beint undir for­sæt­is­ráð­herra. Upp­lýs­inga­full­trúar ann­arra ráðu­neyta heyra undir skrif­stofu­stjóra ráðu­neyt­anna en ekki beint undir ráð­herra hverju sinni. Upp­lýs­inga­full­trúar ráðu­neyta þurfa þess vegna að vera ráðnir sam­kvæmt reglum um opin­ber störf.

Uppfært kl 14:41 – Upp­haf­lega var sagt að upp­lýs­inga­full­trúi rík­is­stjórn­ar­innar væri aðstoð­ar­maður sem ráð­inn væri af for­sæt­is­ráð­herra. Hið rétta er að rík­is­stjórnin hefur sam­kvæmt sömu máls­grein lag­anna um aðstoð­ar­menn ráð­herra heim­ild til að ráða þrjá aðstoð­ar­menn til við­bótar við þá tvo sem hver ráð­herra getur valið sér. Þetta hefur verið áréttað í text­anum hér að ofan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár