Tesmekkur minn ku vera nokkuð breskur þar sem ég kýs mjólk í minn tebolla. Eingöngu þó þegar um er að ræða svart te, enda engin þörf á að vera að sulla með mjólk í góðu rauðrunna- eða piparmyntutei. Kaffi hefur aldrei verið stór hluti af mínu lífi og te hefur þar eingöngu ráðið ríkjum í ein líklegast 17 ár. Þetta hófst allt saman á fyrsta námsári mínu í breskum háskóla þar sem ein sambýliskvenna minna bankaði upp á með rjúkandi heitan tebolla með mjólk (og reyndar að mig minnir sykri sem ég hef ekki notað síðan) og sagði mér að ég myndi ekki endast eina önn án þess að kunna að drekka te. Hún hafði rétt fyrir sér enda mætti líkja tei í breskri menningu á við það að segja jæja á íslensku. Bæði orðin má nota til að bjarga sér úr vandræðalegum aðstæðum, klappa einhverjum á bakið og hefja …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.














































Athugasemdir