Stórveldi sem berjast með naglaspýtum

Mann­skæðar landamæra­deilur á milli Kína og Indlands fyrr á árinu er ein birt­ing­ar­mynd vax­andi spennu á milli stór­veld­anna tveggja, sem kepp­ast um auð­lindir og efna­hags­leg ítök.

Narendra Modi, forseti Indlands, og Xi Jinping, forseti Kína.
Narendra Modi, for­seti Indlands, og Xi Jinping, for­seti Kína. Mynd: EPA

Í hrjóstrugri nátt­úru hárra fjalla­skarða Himala­ya­fjall­anna á landa­mærum Indlands og Kína gerð­ist nokkuð óvenju­legt síð­ast­liðið sumar. Í ann­ars frið­sælli og ósnertri nátt­úru voru þar menn að ráð­ast á hvorn annan með nagla­spýtum, kylfum, steinum og járn­pípum sem varð til þess að 24 létu lífið. Menn­irnir voru kín­verskir og ind­verskir her­menn.

Deil­urnar áttu sér stað við svæði sem nefn­ist Ladakh. Um 270 þús­und manns búa á svæð­inu sem er um 59 þús­und fer­kíló­metrar. Ladakh teygir sig hátt í Himala­ya­fjöllin og hefur menn­ing­ar­lega teng­ingu við Tíbet, en á tíbet­sku þýðir Ladakh einmitt „land hinna háu fjalla­skarða.“

Átökin áttu sér stað í dal við Galwan ána á svæði sem er afar erfitt yfir­ferðar. Á svæð­inu ríkir vopna­hlé og því má ekki nota skot­vopn, efna­vopn né sprengjur innan við tvo kíló­metra frá svæð­inu. Því brutu her­menn­irnir í raun ekki samn­ing­inn um vopna­hlé þegar þeir not­uðu nagla­spýtur og kylfur í átök­unum þar sem að minnsta kosti 4 kín­verskir her­menn og 20 ind­verskir létu lífið.

Norð­ur­hluti Ladakh sem kall­ast Aksai Chin og er undir yfir­ráðum Kína, Indland gerir hins vegar kröfu til svæð­is­ins sem hluta af Ladakh. Aksai Chin fór undir stjórn Kína þegar komm­ún­istar tóku yfir Tíbet árið 1950 en mik­il­vægur vegur frá Tíbet til ann­ars hér­aðs í Kína, Xinjiang, fer í gegnum svæðið. Bæði ríkin krefj­ast yfir­ráða á svæð­inu og eru ekki lík­leg til þess að vilja gefa nokkuð eftir í þeim málum. Indland og Kína hafa áður þónokkrum sinnum barist um svæðið, til að mynda árin 1962, 1967 og 1975.

Hröð hernaðaruppbygging

Bæði Indland og Kína hafa staðið að mik­illi upp­bygg­ingu á svæð­inu á síð­ast­liðnum árum. Indland hefur til að mynda byggt upp um 5.000 kíló­metra af vegum sem tengja Ladakh betur við aðra hluta Indlands. Það sér Kína sem ógn vegna þess að það auð­veldar hernað á svæð­inu. Kínversk stjórn­völd hafa jafn­framt ásakað ind­verska her­menn um að hafa farið yfir á kín­verskt land­svæði. Indversk stjórn­völd telja hins vegar að kín­verski her­inn hafi fært sig sunnar á Galwan ánni en áður sem gerir kín­verska hernum kleift að fylgj­ast með umferð Indverja um svæðið. Því er ljóst að mikið er um fingrabend­ingar á milli ríkj­anna tveggja.

Hern­að­ar­upp­bygg­ingin á svæð­inu var afar hröð í kjöl­farið. Kínversk stjórn­völd byggðu upp her­svæði sem olli því að ind­versk stjórn­völd gerðu slíkt hið sama. Því juku kín­versk stjórn­völd við hern­að­ar­lega við­veru sína og í kjöl­farið gerðu ind­versk stjórn­völd það líka og svo koll af kolli.

Gervi­hnatta­myndir frá maí til hausts 2020 sýna mikla hern­að­ar­upp­bygg­ingu á svæð­inu. Stórir skrið­drekar, stór­skota­lið­stæki, og önnur tæki til hern­aðar birt­ust skyndi­lega á mynd­unum.

Hluti af stærri deilu

En hvers vegna berj­ast tvö fjöl­menn­ustu ríki heims um þetta hrjóstruga land­svæði? Átökin eru hluti af stærri deilu Indlands og Kína. Þær snú­ast ekki ein­göngu um línur á korti á Ladakh svæð­inu, heldur eru aðrir hags­munir í húfi - til að mynda hvað varðar aðgengi að vatni. Kína stefnir til að mynda á að byggja gígantíska vatns­afls­virkjun á Yarlung Tsangpo ánni sem flæðir frá Tíbet til Indlands þar sem áin er þekkt undir nafn­inu Brahmaputra. Það myndi tak­marka aðgengi Indlands að vatni úr ánni til muna. Stefnt er á að upp­bygg­ing virkj­un­ar­innar hefj­ist síðar á þessu ári.

Deil­urnar tengj­ast einnig hinu stóra inn­viða- og fjár­fest­inga­verk­efni kín­verskra stjórn­valda, Belti og braut. Belti og braut er afar umdeilt og eru Banda­ríkin eflaust það ríki sem er opin­ber­lega hvað mest mót­fallið verk­efn­inu. Bæði fyrrum vara­for­seti Banda­ríkj­anna, Mike Pence, og fyrrum utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, Mike Pompeo, hafa gagn­rýnt fram­takið og sagt það varpa ríkjum í skulda­gildru.

Indversk stjórn­völd eru einnig mjög gagn­rýnin á verk­efnið. Með verk­efn­inu stefna kín­versk stjórn­völd á að auka vega­sam­göngur sínar til nær­liggj­andi landa, til að mynda Myanmar, Bangla­desh og Pakistan. Jafn­framt ætla þau sér að styrkja sigl­inga­leiðir sínar um Ind­lands­haf til muna og hafa komið upp höfn í Sri Lanka og Gwadar höfn í Pakistan sem hluta af þeirri leið. Pakistan er nefn­in­lega annar hlekkur í deil­unni.

Efnahagssamband eða hernaðarbandalag?

Kína og Pakistan hafa á síð­ustu árum styrkt efna­hags­legt sam­band sitt. Samkvæmt grein The New York Times hefur Kína fjár­fest 62 millj­örðum doll­ara í Pakistan undir for­merkjum Beltis og brautar sem hefur styrkt sam­band ríkj­anna til muna.

Í gegnum Belti og braut er áætlað að „Efna­hags­gátt“ [e. Economic Corridor] Kína og Pakistan muni tengja Gwadar höfn­ina sem er við Arab­íu­haf við lestar­teina allt norður til Kína. Vonast er til að vöru­við­skipti á milli ríkj­anna muni aukast til muna. Það myndi þó líka tryggja aðgengi Kína að Arab­íu­hafi og auð­velda aðgengi að Ind­lands­hafi.

Mikill skortur hefur verið á fjár­fest­ingum í Pakistan, sér­stak­lega þegar kemur að innviðum.

Samkvæmt upp­lýs­ingum sem blaða­menn the New York Times hafa undir hönd­unum, liggur fyrir samn­ingur um hern­að­ar­við­skipti á milli Pakist­ans og Kína. Í samn­ingnum stendur að Kína muni kaupa her­þotur, rad­ar­sjár og annan her­varn­ing fram­leiddan í Pakistan fyrir kín­verska her­inn. En Kína selur Pakistan jafn­framt her­varn­ing. Til að jafna leik­inn gagn­vart Kína og Pakistan stefnir Indland á að kaupa her­dróna frá Banda­ríkj­unum fyrir þrjá millj­arða Banda­ríkja­dali.

Enn bætist í hópinn

Í þennan dans á milli Indlands, Kína og Pakist­ans bæt­ast svo við Japan, Ástralía og Banda­ríkin. Saman mynda Indland með þeim síð­ar­nefndu ríkjum Hin fjóru eða Fjór­gengið [e. Quad] sem hefur verið kallað „Nató Indó-Kyrra­hafs­ins“.

Um er að ræða óform­legan örygg­is­vett­vang ríkj­anna fjórra. Þau funda reglu­lega um örygg­is­mál og hvernig þau geti styrkt sam­band sitt og vegið á móti auknum völdum Kína.

Ófyrirséðar afleiðingar

En snúum okkur aftur að Ladakh. Í kjöl­far átak­anna á landa­mær­unum var gerð risa­stór netárás á borg­ina Mumbai í Indlandi sem varð til þess að raf­magn fór af borg­inni, lestir stöðv­uð­ust og hluta­bréfa­mark­að­ur­inn lok­að­ist tíma­bundið. Spítalar þurftu að nýta sér neyð­ar­rafala í miðjum COVID-19 far­aldri.

Samkvæmt ind­verskum yfir­völdum var netárásin fram­kvæmd af kín­verskum aðilum og er kín­verski her­inn sér­stak­lega nefndur í því sam­hengi.

Enn gætir vantrausts

Eftir að hafa reynt í tíu skipti að semja um að draga her­menn frá landa­mær­unum náð­ist loks sam­komu­lag í febr­úar síð­ast­liðnum. Bæði ríki hafa því fjar­lægt her­menn sína frá svæð­inu. Enn er þó deilt um nákvæma stað­setn­ingu landamær­anna.

Í kjöl­far þess ræddu utan­rík­is­ráð­herrar ríkj­anna tveggja í fyrsta sinn í síma í um fimm mán­uði. Samkvæmt til­kynn­ingu frá kín­verska utan­rík­is­ráðu­neyt­inu sagði Wang Yi, utan­rík­is­ráð­herra Kína, í sím­tali sínu við Subra­hmanyam Jais­hinkar, utan­rík­is­ráð­herra Indlands, að bæði ríki þyrftu að vinna saman til að koma á stjórnun á landa­mær­unum og byggja upp traust að nýju. Jais­hinkar sagði að sam­skipti ríkj­anna hefðu skað­ast til muna á síð­ast­liðnu ári.

Sam­skiptin hafa vissu­lega skað­ast. Í kjöl­far átak­anna á landa­mær­unum sem og netárás­ar­innar hafa ind­versk stjórn­völd reynt að koma í veg fyrir kín­verskar fjár­fest­ingar í land­inu og bannað notkun meira en 200 kín­verskra for­rita, til að mynda TikTok og WeChat. Svo má ekki gleyma fyr­ir­hug­aðri vatns­afls­virkjun kín­verskra stjórn­valda á Yarlung Tsangpo ánni.

Leið­togar Kína og Indlands, Xi Jinping og Narendra Modi, eru báðir mjög þjóð­ern­is­sinn­aðir og vilja hvor­ugir virð­ast lúffa fyrir hinum. Því er ljóst að þrátt fyrir að her­menn­irnir hafi verið fjar­lægðir þá gæti enn mik­ils van­trausts á milli ríkj­anna tveggja.

Kín­verska rík­is­frétta­stöðin CCTV deildi eft­ir­far­andi mynd­bandi um átökin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár