Samtök atvinnulífsins leggja til sameiningu HMS og Skipulagsstofnunar

Samtök atvinnu­lífs­ins segja að stjórn­völd hafi aðal­lega ýtt undir eft­ir­spurn með aðgerðum sínum í hús­næð­is­málum á und­an­förnum árum. Nú þurfi að auka fram­boð – og til þess að það sé hægt að byggja hratt þurfi að ein­falda reglu­verkið í bygg­ing­ar­iðn­að­inum.

Samtök atvinnulífsins segja að einfalda þurfi regluverk og skipulagsferla hér á landi til að hraða íbúðauppbyggingu.
Samtök atvinnu­lífs­ins segja að ein­falda þurfi reglu­verk og skipu­lags­ferla hér á landi til að hraða íbúða­upp­bygg­ingu. Mynd: Bára Huld Beck

Samtök atvinnu­lífs­ins segja, í glæru­kynn­ingu sem full­trúar hags­muna­sam­tak­anna kynntu fyrir fjár­laga­nefnd í morgun, að sam­ein­ing Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar (HMS) og Skipu­lags­stofn­unar myndi „ná fram bættu sam­starfi og auk­inni skil­virkni“. Styðjast mætti við nor­rænar fyr­ir­myndir í þessum efnum.

„Sam­ein­ing HMS og Skipu­lags­stofn­unar væri í takti við þróun mála­flokks­ins nálægum löndum. Þar hafa öll mál­efni bygg­ingar- og mann­virkja­gerðar, frá skipu­lagi til upp­bygg­ingar, verið sett undir sama hatt innan stjórn­sýsl­unnar til að efla mála­flokk­inn. Í Svíþjóð falla hús­næðis-, mann­virkja- og skipu­lags­mál undir eina stofnun, Boverket. Í Danmörku hafa öll þessi mál­efni verið sam­einuð undir nýja stofnun, Bolig- og plan­styrelse,“ segja SA í þess­ari glæru­kynn­ingu sinni til þing­nefnd­ar­innar, þar sem farið er yfir er yfir til­lögur sam­tak­anna að lausnum við íbúða­skorti.

Stjórnvöld hafi aðallega ýtt undir eftirspurn

Í glæru­kynn­ing­unni segir einnig að aðgerðir stjórn­valda á hús­næð­is­mark­aði, eins og sér­stök úttekt sér­eign­ar­sparn­aðar vegna COVID-19, Fyrsta fast­eign og hlut­deild­ar­lán, hafi fyrst og fremst ýtt undir eft­ir­spurn.

Rót vand­ans sé hins vegar fram­boðs­skortur á fast­eigna­mark­aði, sem verði leystur með því að auka fram­boð, á meðan að eft­ir­spurn­ar­hvetj­andi aðgerðir auki á vand­ann. SA segja að byggja þurfi meira, hraðar og á hag­kvæm­ari hátt svo það dragi úr hækkun hús­næð­is­verðs og jafn­vægi skap­ist á mark­aðnum. Talið sé að byggja þurfi 27 þús­und íbúðir á land­inu fram til árs­ins 2030.

Útvistun byggingaeftirlits og einföldun regluverks

Til­lög­urnar sem SA leggja fram til fjár­laga­nefndar í hús­næð­is­málum snúa margar að ein­földun reglu­verks­ins sem er utan um bygg­ing­ar­starf­semi hér­lendis. Samtökin leggja meðal ann­ars til að lög­bundið ferli við breyt­ingar á deiliskipu­lagi verði stytt og fram­kvæmdin straum­línu­löguð. Þá verði skil­virkni aukin í skilum og yfir­ferð á hönn­un­ar­gögnum og tryggja að sam­ræmi milli bygg­ing­ar­full­trúa­emb­ætta sé til staðar.

Einnig leggja sam­tökin til að minna eft­ir­lit verði með minni bygg­ing­ar­verk­efnum en þeim sem eru stærri, en ekki jafn­strangar eft­ir­lits­kröfur til allra nýbygg­inga eins og er í dag. Einnig leggja SA til að bygg­ing­ar­eft­ir­liti, sem er nú í höndum sveit­ar­fé­laga, verði hægt að útvista til fyr­ir­tækja sem sér­hæfi sig í því, líkt og hægt sé að gera í Noregi og Danmörku.

Kerfisbreytinga þörf ef þétta eigi byggðina

Þá segja SA að tryggja verði að lóða­skortur hamli ekki íbúða­upp­bygg­ingu. Vísa sam­tökin til könn­unar á meðal félags­manna Samtaka iðn­að­ar­ins og þess að 80 pró­sent þeirra telji skort á lóða­fram­boði koma í veg fyrir hag­kvæma hús­næð­is­upp­bygg­ingu og að hag­kvæmt hús­næði verði ekki byggt á þétt­ing­ar­reitum við óbreytt kerfi.

„Ef byggja á hag­kvæmt hús­næði á þétt­ing­ar­reitum þurfa mik­il­vægar kerf­is­breyt­ingar að eiga sér stað sem eru til þess fallnar að draga úr bygg­ing­ar­kostn­aði,“ segir í glæru­kynn­ing­unni frá Samtökum atvinnu­lífs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár