Kynferðisleg friðhelgi á stafrænum tímum

„Okkur ber skylda til að gera eitthvað,“ segja sérfræðingar sem starfa á sitthvorum enda þess að vinna gegn stafrænu ofbeldi, netníði og hrelli­klámi, og trúa því að gerendur muni alltaf finna leið til að beita ofbeldi. Hugmyndir sem birtast á netinu geta endur­speglað ætlunar­verk manna og hafa kostað fólk lífið. Hrelli­klám snúist til um völd en ekki klám, að sækja nekt gegn vilja einhvers, því nóg er af nekt á internetinu, en ef við ætlum að skrímsla­veiðar munum við finna nágranna okkar.

Sophie Mortimer og Christian Mogensen hafa fengið sér sæti í annarri sætaröð í annars tómum sal Borgar­leikhússins. Fyrir framan þau blasir stóra sviðið við, tómt eins og salurinn fyrir utan þrjá stóla. Fyrr um daginn sátu þau í þessum stólum sem sérfræðingar á sviði kynferðislegrar friðhelgi á stafrænum tímum á málþingi um sama viðfangs­efni. 

Sophie er yfirmaður Revenge Porn Helpline í Bretlandi, samtök sem sérhæfa sig í stafrænu kynferðis­ofbeldi, en í gegnum þau hefur hún stutt brotaþola slíkra brota ásamt því að berjast fyrir kerfis­breytingum í mála­flokknum. Samtökin sem Sophie stofnaði hafa náð samstarfi við tæknirisa á borð við Google og Meta til að vinna að því að fjarlægja myndefni sem er birt í óþökk einhvers af internetinu.

Sophie Mortimer

Christian er danskur fræði­maður og einn höfunda skýrslunnar „Hið reiða internet – ógn við kynja­jafnrétti, lýðræði og …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár