Laun og hlunnindi æðstu stjórnenda ættu aldrei að vera hærri en ferföld lágmarkslaun

Forseti ASÍ segir að þol­in­mæði Íslend­inga fyrir mis­skipt­ingu hafi auk­ist stór­kost­lega og að engar skyn­sam­legar reglur virð­ist gilda um launa­mun.

Drífa Snædal, forseti ASÍ.
Drífa Snædal, for­seti ASÍ. Mynd: Bára Huld Beck

Drífa Snædal for­seti ASÍ gerir launa­mun að umtals­efni í föstu­dag­spistli sínum í dag. Hún segir meðal ann­ars að skil­yrða ætti hæstu laun við þau lægstu.

Hún byrjar á því að spyrja hvað full­trúum Samtaka atvinnu­lífs­ins finn­ist vera eðli­legur launa­munur.

„Ef ég væri í hlut­verki frétta­spyrils myndi ég spyrja þess­arar spurn­ingar. Á hverju ári fáum við fréttir af ofur­launum og hand­ritið er í raun ritað fyr­ir­fram,“ skrifar hún.

Þolinmæði fyrir misskiptingu hefur aukist stórkostlega

Drífa segir að þau í verka­lýðs­hreyf­ing­unni hafi nú þegar bent á rang­lætið og sett í sam­hengi við almenn laun í land­inu og kjara­samn­inga og á móti ómi svo árvissi söng­ur­inn um ábyrgð; að hlut­falls­lega hækk­unin sé ekki svo mikil og „fleiri kreistar rétt­læt­ingar í svip­uðum dúr“.

[links]Hún telur að hug­takið „hlut­falls­lega“ sé þarna lyk­il­orð. „10 pró­sent hækkun á 400 þús­und króna laun eru 40 þús­und krónur en 5 pró­sent hækkun á fjórar millj­ónir eru 200 þús­und krónur. Minni hlut­falls­leg hækkun á ofur­laun getur munað góðri utan­lands­ferð. Það sem eftir stendur í umræð­unni er; hver á launa­mun­ur­inn að vera? Fyrir hvernig ábyrgð og störf á að greiða meira og hversu mikið?“ spyr hún.

„Þegar umræða síð­ustu ára­tuga er rakin kemur í ljós að þol­in­mæði okkar fyrir mis­skipt­ingu hefur auk­ist stór­kost­lega. Um miðja síð­ustu öld var til umræðu að eng­inn fengi meira en tvö­föld laun þess lægst laun­aða. Síðan þró­að­ist umræðan yfir í að þre­föld laun væru eðli­legur munur og síðan fjór­föld. Nú erum við svo komin á stað þar sem engar skyn­sam­legar reglur virð­ast gilda um launa­mun.“

Skilyrða ætti hæstu laun við þau lægstu

Sjálf seg­ist Drífa alltaf hafa verið hrifin af þeirri hug­mynd að þau sem eru með hæstar tekjur hafi beinan hag af því að hækka lægstu laun. Að skil­yrða hæstu laun við þau lægstu. Ágætis byrjun væri að ríkið setti það inn í eig­enda­stefnu sína hvert ásætt­an­legt launa­hlut­fall væri innan þeirrar starf­semi sem Íslend­ingar eigi allir.

Drífa bendir á að í eig­enda­stefn­unni standi að laun séu hóf­leg, sam­keppn­is­hæf, en ekki leið­andi og taki mið af opin­beru eign­ar­haldi.

Leggur hún því til við­bót­ina: „Laun og hlunn­indi æðstu stjórn­enda skuli aldrei vera hærri en fer­föld lág­marks­laun verka­fólks sam­kvæmt almennum kjara­samn­ingum.“

Drífa segir að þetta yrði stefnu­mót­andi og myndi losa Íslend­inga út úr and­lausri árvissri umræðu um ofur­laun. „Almenni mark­að­ur­inn ætti svo auð­vitað að til­einka sér þetta sömu­leiðis. Í raun er ekki eftir neinu að bíða þar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár