Búið að skipa rannsakanda á þætti Hauck & Aufhäuser á kaupum í Búnaðarbanka

Finnur Ingólfsson og Ólafur Ólafsson leiddu S-hópinn svokallaða sem keypti hlut ríkisins í Búnaðarbankanum. Stuttu eftir að gengið var frá kaupunum sameinaðist Búnaðarbankinn Kaupþingi og úr varð stærsti banki á Íslandi. Hann féll síðan haustið 2008.
Finnur Ing­ólfs­son og Ólafur Ólafsson leiddu S-hóp­inn svo­kall­aða sem keypti hlut rík­is­ins í Bún­að­ar­bank­anum. Stuttu eftir að gengið var frá kaup­unum sam­ein­að­ist Bún­að­ar­bank­inn Kaup­þingi og úr varð stærsti banki á Íslandi. Hann féll síðan haustið 2008.

Einar K. Guð­finns­son, for­seti Alþingis, hefur skipað Kjartan Bjarna Björg­vins­son, hér­aðs­dóm­ara við Hér­aðs­dóm Reykja­víkur, til að fara með rann­sókn á aðkomu þýska bank­ans Hauck & Auf­häuser á hlut rík­is­ins í Bún­að­ar­bank­anum snemma árs 2003. Frá þessu er greint á RÚV. Kjartan Bjarni var um tíma aðstoð­ar­maður umboðs­manns Alþingis, og vann hjá emb­ætt­inu frá árinu 2002 til 2009. Hann starf­aði síðar hjá EFTA-dóm­stólnum. Kjartan Bjarni var skip­aður í hér­aðs­dóm­ari í maí 2015.

í byrjun júní síð­ast­lið­ins var sam­þykkt þings­á­lykt­un­ar­til­laga um að aðkoma þýska einka­bank­ans Hauck & Auf­häuser að kaupum S-hóps­ins á 45,8 pró­sent hlut í Bún­að­ar­bank­anum í byrjun árs 2003 yrði rann­sökuð af sér­stakri rann­sókn­ar­nefnd sem mun hafa víð­tækar heim­ildir til að kalla eftir upp­lýs­ing­um. Rann­sókn máls­ins á að vera lokið fyrir árs­lok og var tekið fram að einn maður myndi skipa rann­sókn­ar­nefnd­ina.

Rann­sóknin bein­ist sér­stak­lega að hlut þýska einka­bank­ans Hauck & Auf­häuser að kaupum S-hóps­ins á Bún­að­ar­bank­anum í byrjun árs 2003. Rann­sóknin verður fram­kvæmd eftir ábend­ingu Tryggva Gunn­ars­son­ar, umboðs­manns Alþing­is, sem sendi stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd bréf í síð­asta mán­uði þar sem hann lagði til að skipuð yrði rann­sókn­ar­nefnd um mál­ið. Þetta eigi að gera vegna þess að Tryggvi hafi nýjar upp­lýs­ingar sem byggja á ábend­ingum um hver raun­veru­leg þátt­taka þýska bank­ans var. Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans mun rann­sóknin meðal ann­ars snú­ast um hvort Kaup­þing, sem var sam­ein­aður Bún­að­ar­bank­anum skömmu eftir að söl­una á bank­an­um, hafi fjár­magnað Hauck &Auf­häuser.

Til við­bótar er til­gangur til­lög­unnar að „skapa grund­völl fyrir nán­ari afmörkun á ályktun Alþingis frá 7. nóv­em­ber 2012, um rann­sókn á einka­væð­ingu Fjár­fest­ing­ar­banka atvinnu­lífs­ins hf., Lands­banka Íslands hf. og Bún­að­ar­banka Íslands hf., sbr. ákvæði laga um rann­sókn­ar­nefndir með síð­ari breyt­ing­um."

Kjarninn fjall­aði ítar­lega um málið í frétta­skýr­ingu í lok maí.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár