Katrín nýtur mest trausts en traust til Lilju helmingast milli ára

Þrír ráð­herrar Sjálf­stæð­is­flokks­ins raða sér í þrjú efstu sætin yfir þá ráð­herra sem lands­menn treysta síst. Þeim fækkar sem segj­ast treysta Lilju Alfreðs­dóttur mest en fjölgar sem nefna Svandísi Svav­ars­dóttur eða Sigurð Inga Jóhanns­son.

Ráðherrar í ríkisstjórn hafa verið mismunandi sýnilegir vegna COVID-19. Svandís Svavarsdóttir nýtur nú meira trausts en áður, Katrín Jakobsdóttir stendur í stað en traust til Lilju Alfreðsdóttur hefur helmingast á rúmu ári.
Ráð­herrar í rík­is­stjórn hafa verið mis­mun­andi sýni­legir vegna COVID-19. Svandís Svav­ars­dóttir nýtur nú meira trausts en áður, Katrín Jak­obs­dóttir stendur í stað en traust til Lilju Alfreðs­dóttur hefur helm­ing­ast á rúmu ári. Mynd: Bára Huld Beck

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra er sá ráð­herra í rík­is­stjórn sem nýtur mest trausts, en 18,5 pró­sent kjós­enda segj­ast treysta henni, sam­kvæmt könnun sem Zenter gerði fyrir Frétta­blaðið og birt er í dag. Það er mjög sam­bæri­legt hlut­fall og treysti Katrínu best í könnun sem gerð var í júní í fyrra, þegar 18,1 pró­sent bar mest traust til for­sæt­is­ráð­herr­ann.

[links]Sá ráð­herra sem hefur dalað mest á list­anum er Lilja Alfreðs­dóttir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra. Hún var sá ráð­herra sem flestir treystu best þegar könn­unin var gerð í fyrra­sumar, en þá sögð­ust 20,5 pró­sent aðspurðra að hún væri sá ráð­herra sem þeir bæru mest traust til. Í könn­un­inni sem birt er í dag er það hlut­fall komið niður í 10,7 pró­sent, og hefur því nán­ast helm­ing­ast á rúmu ári. Mánuðina áður en að könnun Zenter var gerð í fyrra hafði Lilja verið mikið í kast­ljósi fjöl­miðla sem ein þeirra sem varð fyrir barð­inu á tali nokk­urra þing­manna Mið­flokks­ins á Klaust­ur­bar í nóv­em­ber 2018, og hafði hlotið lof fyrir fram­göngu sína í kjöl­farið þar sem hún kall­aði hátt­erni mann­anna meðal ann­ars ofbeldi.

Lilja er nú í þriðja sæti á list­anum yfir þá ráð­herra sem best er treyst, en rétt fyrir ofan hana er Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Alls segja 10,8 pró­sent lands­manna að þeir treysti honum best allra ráð­herra.

Tveir ráð­herrar bæta ágæt­lega við sig á milli ára. Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra nýtur nú mest trausts hjá 7,2 pró­sent aðspurðra en það hlut­fall var þrjú pró­sent fyrir rúmu ári síðan. Sigurður Ingi Jóhanns­son, sam­göngu- og sveita­stjórn­ar­ráð­herra, fer úr 2,2 pró­sentum í 6,2 pró­sent og Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, lækkar skarpt í trausti milli ára. Hún naut mest trausts hjá 6,8 pró­sent lands­manna sum­arið 2019 en það hlut­fall mælist nú 3,8 pró­sent.

[adspot]Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, sem tók við emb­ætti dóms­mála­ráð­herra í fyrra­haust, er nú mæld í fyrsta sinn í könnun Zenter. Alls segj­ast 4,7 pró­sent kjós­enda treysta henni best allra ráð­herra.

Þrír ráðherrar Sjálfstæðisflokks í þremur efstu sætunum

Bjarni Bene­dikts­son er áfram sem áður sá ráð­herra sem flestir bera minnst traust til. Alls seg­ist fjórð­ungur aðspurðra að þeir treysti honum minnst. Það er þó umtals­vert lægra hlut­fall en í fyrra þegar 35 pró­sent sögð­ust ekki treysta Bjarna. 

Á eftir Bjarna á list­anum yfir þeim sem er minnst treyst kemur sam­flokks­maður hans Kristján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra. Hlutfall þeirra sem nefna hann sem ráð­herr­ann sem þeir treysti minnst hefur rokið upp milli ára og er nú 18,8 pró­sent. Í fyrra var það hlut­fall 8,7 pró­sent og Kristján Þór hefur því tekið til sín nær alla þá sem nefndu Bjarna sem þann sem þeir treystu minnst í fyrra, en völdu annan ráð­herra í ár.

Færri bera minnst traust til heil­brigð­is­ráð­herra en í fyrra sögð­ust næst­flestir bera minnst traust til Svan­dísar. Í stað hennar er Kristján Þór Júl­í­us­son nú næstoft­ast nefndur á eftir Bjarna. Í fyrra báru 8,7 pró­sent minnst traust til Krist­jáns Þórs en, en tæp 19 pró­sent bera minnst traust til hans í dag. Kristján Þór hefur verið mikið í sviðs­ljósi fjöl­miðla und­an­farið ár vegna tengsla sinna við Samherja, en það fyr­ir­tæki og nokkrir lyk­il­starfs­menn þess eru til rann­sóknar vegna meintra mútu­greiðslna, pen­inga­þvættis og skatta­snið­göngu í tengslum við umsvif þess í Namibíu.

Töluvert dregur úr þeim fjölda sem nefndir Svandísi Svav­ars­dóttur sem þann ráð­herra sem þeir treysta minnst. Það hlut­fall var 13,1 pró­sent í fyrra en er 5,8 pró­sent nú.

Í þriðja sæti yfir þá ráð­herra sem er treyst minnst er sá nýjasti, Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, með 9,4 pró­sent. Því raða ráð­herrar Sjálf­stæð­is­flokks sér í þrjú efstu sætin yfir þá sem fólk nefnir þegar það er spurt um hvaða ráð­herra það treystir minnst.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra stendur nán­ast í stað í þeim flokki milli ára, fer úr 5,5 pró­sentum í 5,9 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár