Hættan af barnaskap og einfeldni

Und­an­farin ár hafa sam­tök kennd við íslamskt ríki farið með ófriði, sér í lagi í ríkjum þar sem upp­lausn ríkir og stjórn­ar­far er í molum, eins og Írak, Sýrlandi og Líbýu. Eftir að sam­tökin færðu sig upp á skaftið með stríðs­yf­ir­lýs­ingum og hryðju­verkum í vest­rænum borgum hefur þeim verið lýst sem mestu ógn sem heim­ur­inn stendur frammi fyrir.

Í gömlum spak­mælum segir eitt­hvað á þá leið að vel­ferð sé ekki háð því sem hendir á lífs­leið­inni, heldur hvernig brugð­ist er við í þeim aðstæðum sem upp koma. Þetta má setja í stærra sam­hengi þar sem við­brögð alþjóða­sam­fé­lags­ins við hryðju­verka­vand­anum eru lyk­il­at­riði.

Var­huga­vert er í því sam­bandi að saka þá sem vilja stíga var­lega til jarðar, og t.d. efast um gildi loft­árása á liðs­menn Íslamska rík­is­ins, um barna­lega ein­feldni eða samúð með hryðju­verka­mönnum. Það er mjög mik­il­vægt að aðgerðir til að ráða nið­ur­lögum þess­ara öfga­afla séu yfir­veg­aðar og byggðar á stað­reyndum en ekki hræðslu­á­róðri, heift og póli­tískri sýnd­ar­mennsku.

Uppblásnar æsifréttir

Ummæli þjóð­ar­leið­toga og umfjöllun fjöl­miðla í æsifrétta­stíl eru til þess fallin að fólk telur hætt­una á hryðju­verkum almennt vera að aukast. Raun­veru­leik­inn er þó allt annar því rann­sóknir og skrif fræði­manna leiða í ljós að hætta á hryðju­verkum á Vest­ur­löndum er hverf­andi. Nánari skoðun sýnir einnig að það eru sjaldn­ast íslamskir öfga­menn að baki þeim hryðju­verkum sem þó eru framin.

Hér er ekki gert lítið úr hugs­an­legri auk­inni ógn eða þeim skelfi­legu voða­verkum sem framin hafa verið. Hins vegar má færa fyrir því rök að þind­ar­laus og upp­blásin umfjöllun verði ein­ungis til að styðja við mál­stað hinna ofstæk­is­fullu hryðju­verka­manna. Hún hjálpi þeim að ná fram ætl­un­ar­verk­inu: að hræða fólk, skipta í fylk­ingar og grafa undan stöð­ug­leika vest­rænna ríkja, kalla fram ofsa­fengin við­brögð eins og loft­árásir, tak­mark­anir á ferða­frelsi og hrak­lega með­ferð flótta­manna.

Það flækir einmitt málið að við þetta bland­ast umræða um auk­inn flótta­manna­straum til Evrópu. M.a. áttu hryðju­verka­menn­irnir sem stóðu að ódæð­unum í París í nóv­em­ber að hafa smeygt sér í raðir flótta­manna til að kom­ast milli landa. Sann­ar­lega vafa­samar vanga­veltur þar sem hryðju­verka­menn­irnir voru flestir Evr­ópu­búar búsettir í Frakk­landi og Belgíu. Í umræð­unni er einnig grautað saman hætt­unni á öfga-Íslams­trú, aðlögun inn­flytj­enda í nýju sam­fé­lagi og auk­inni hættu á hryðju­verkum.

Í kjöl­far voða­verk­ana í París voru við­brögð Francois Hollande eins og við mátti búast og minntu á við­brögð George W. Bush eftir hryðju­verkin 11. sept­em­ber árið 2001. Hollande lýsti umsvifa­laust yfir stríði gegn Íslamska rík­inu og franski lofther­inn hélt nán­ast sam­stundis í árás­ar­ferðir sem beindust að liðs­mönnum þess.

Það er býsna áhrifa­ríkt að sjá myndir af orr­ustu­þotum taka á loft af flug­móð­ur­skipi því birt­ing­ar­mynd valds­ins verður vart mikið skýr­ari. Slíkt vekur með fólki þá til­finn­ingu að verið sé að bregð­ast við – „gera eitt­hvað“ – í nafni þjóð­ar­innar. Það þjappar fólki saman, fylkir því að baki leið­tog­anum og styrkir völd hans.

Loft­árásir Frakka í kjöl­far hryðju­verk­ana í París í nóv­em­ber virt­ust þó hvorki her­fræði­lega né póli­tískt úthugs­aðar ­– nema þá til heima­brúks. Sýndust þær frekar vera svið­settar hefnd­ar­að­gerðir því önnur ríki drógu sig í hlé á meðan Frakkar fengu að athafna sig svo þeir ættu sviðið örugg­lega einir. Það minnir dálítið á atriði í sjón­varps­þætti þar sem löggan lítur undan á meðan eig­in­mað­ur­inn, fullur hefnd­ar­þorsta, fær að ganga í skrokk á ódámnum sem sví­virti konu hans.

Á að semja við hryðjuverkamenn?

Þegar hryðju­verka­menn láta til skarar skríða og hafa að ein­hverju leyti tekið frum­kvæði með til­heyr­andi ógn og skelf­ingu, er úr vöndu að ráða. Sumir vilja fara þá leið að semja ekki við hryðju­verka­menn en aðrir hafa bent á að sé samn­inga­leið­inni kastað fyrir róða þá þurfi menn að vera til­búnir að taka afleið­ing­unum og berj­ast þar til yfir lýkur.

Í kjöl­far árásanna 11. sept­em­ber hafa Banda­ríkja­menn varið óheyri­legum fjár­hæðum til að upp­ræta hryðju­verka­starf­semi í Mið­aust­ur­löndum, Afganistan og víðar – og her­styrkur vest­rænna ríkja, Banda­ríkj­anna og NATO-ríkj­anna er gríð­ar­lega mik­ill í sam­an­burði við her­styrk Íslamska rík­is­ins.

Þrátt fyrir yfir­lýst stríð gegn hryðju­verkum, allan þennan hern­að­ar­mátt og linnu­lausar loft­árásir með háþró­uðum vopnum gegn til­teknum skot­mörkum, virð­ast þau hryðju­verka­sam­tök sem barist er gegn fremur dafna en hitt. Þrátt fyrir allar þessar aðgerðir spratt upp það sem kallað er Íslamska ríkið, sam­tök sem talin eru ógna heims­friðnum svo mjög að öfl­ug­asta her­veldi heims skelfur á bein­unum.

Erfitt að komast hjá beitingu hervalds – en hvað svo?

Aðferð­irnar virka því greini­lega ekki. Jafn­framt hefur verið bent á að and­stæð­ing­ur­inn, sem vest­ræn ríki standa frammi fyrir nú, hafi engan áhuga á samn­inga­við­ræðum. Þannig að jafn­vel þótt reynt væri að fara þá leið væri það tæp­ast væn­legt til árang­urs. Vera kann að eina leiðin sé að láta reyna á hinn gríð­ar­lega her­styrk sem vest­ur­veldin búa yfir.

Slíkum hern­að­ar­úr­ræðum þarf að beita af yfir­vegun, jafnt á póli­tískum og her­fræði­legum for­sendum, fremur en með „stríði gegn hryðju­verkum“ eða til­fallandi refsi­að­gerðum eins og loft­árásum til að friða reiðar þjóðir og tryggja vin­sældir. Þessar aðgerðir þyrftu jafn­framt að vera með sam­þykki Örygg­is­ráðs Sam­ein­uðu þjóð­anna og við­tækum stuðn­ingi alþjóða­sam­fé­lags­ins.

Barack Obama hefur sagt að sam­staða hafi náðst um aðgerðir til að takast á við Íslamska ríkið. Sú sam­staða virð­ist þó lítið meira en orðin tóm og ástæðan eru mis­mun­andi hags­munir ríkja. Má þar nefna að Tyrkir virð­ast hafa frítt spil í þess­ari bar­áttu, kaupa olíu af Íslamska rík­inu og fá að óhindrað að berja á sveitum Kúrda sem þó hafa barist hvað hetju­leg­ast gegn öfga­sam­tök­unum. Einnig hafa sumir haldið því fram að aðgerðir Rússa í Sýrlandi snú­ist meira um að halda Assad for­seta við völd en að ráða nið­ur­lögum Íslamska rík­is­ins.

Ef beita á her­valdi væri einn mögu­leiki að NATO kæmi að málum því Banda­lagið hefur mikla burði og sterkan bak­grunn til slíkra verk­efna. NATO býr yfir víð­tækum úrræðum, en aðild­ar­ríki þess ráða m.a. yfir þremur millj­ónum manna undir vopnum, meira en 25.000 flug­vélum, 800 her­skipum, og 50 AWACS flug­vélum. Jafn­framt eru banda­lags­ríkin ábyrg fyrir um helm­ingi af lands­fram­leiðslu heims­ins.

Liðsmenn Íslamska rík­is­ins dreifa sér gjarnan á meðal almennra borg­ara inni í borgum, sem er einmitt eitt af því sem gerir sprengju­árásir og hefð­bund­inn hernað gegn þeim að slæmum kosti. NATO hefur gefið sig út fyrir að vera meira en hern­að­ar­legt varn­ar­banda­lag – þar sem póli­tísk og borg­ara­leg úrræði þurfi einnig að koma til þegar stilla eigi til friðar í átökum – og ætti að geta starfað í þeim anda að verk­efn­inu.

Meg­in­máli skiptir þó það sem á eftir kemur, sú upp­bygg­ing sem þarf að eiga sér stað eftir að hern­að­ar­að­gerðum líkur. Þó NATO hafi náð þeim hern­að­ar­legu mark­miðum sem lagt var upp með í Líbýu árið 2011, gleymd­ist alger­lega að taka með í reikn­ing­inn hvað tæki við eftir að Muammar Gaddafi var komið frá völdum. Þar hefur því ríkt upp­lausn­ar­á­stand sem er gróðr­ar­stía fyrir öfga­öfl og hryðju­verka­menn.

Í raun má segja að það sama hafi verið uppi á ten­ingnum eftir inn­rás­ina í Írak. Þá gerðu Banda­ríkja­menn þau mis­tök að leysa upp her og lög­reglu lands­ins og senda menn heim launa­lausa. Afleið­ing­arnar voru alger upp­lausn og hund­ruð þús­unda óánægðra vopn­færra manna í atvinnu­leit, sem m.a. lagði ákveð­inn grunn fyrir Íslamska ríkið.

Vestrænt skipulag og gildi eiga ekki við

Hafa ber í huga að upp­reisn­ar­menn og skæru­liða­sveitir hafa oft og tíðum tak­mark­aðan áhuga á að koma á stöð­ugu lýð­ræð­is­sam­fé­lagi að vest­rænni fyr­ir­mynd hinna full­valda ríkja. Grund­völlur slíkra mótherja er heldur ekki endi­lega til­tekið land­svæði, ríki eða þær form­legu stofn­anir sem því til­heyra, sem bíði þess að vera end­ur­reist – heldur mál­staður, hug­sjónir eða bar­áttu­mál sem lúta öðrum lög­málum en hið vest­ræna kerfi sem reynt er að koma á. Þetta á einmitt við um Íslamska ríkið.

Yfir­gangur og stjórn­semi Vest­ur­landa í Mið­aust­ur­löndum og víðar er eitt af því sem skapað hefur það ástand sem upp er komið. Þar er einn þátt­ur­inn stuðn­ingur Vest­ur­landa við þau stjórn­völd sem hlið­holl eru vest­rænum hags­munum, sem gjarnan tengj­ast olíu. Hann við­heldur mik­illi mis­skipt­ingu í þeim sam­fé­lögum þar sem hryðju­verka­menn­irnir vaxa upp og tryggir gjarnan yfir­þyrm­andi auð og völd til­tölu­lega fámennrar valda­stéttar, á meðan almenn­ingur ber skarðan hlut frá borði.

Líklega er far­sæl­ast að Vest­ur­lönd reyni að forð­ast að vera að vasast í mál­efnum ríkja Mið­aust­ur­landa. Ósenni­legt er að stríðið gegn öfga­fullum jíhad­istum vinn­ist, álíka ósenni­legt og að stríðið gegn fíkni­efnum eða glæpum vinn­ist end­an­lega, því hryðju­verka­menn og öfga­hópar munu ætíð halda áfram að skipu­leggja og fremja voða­verk, hvort sem Íslamska ríkið er til staðar eða ekki.

Segjum að það næð­ist í skottið á meiri­hluta liðs­manna Íslamska rík­is­ins, höf­uð­vígi þess væru jöfnuð við jörðu og fjár­hags­legum grund­velli kippt þar undan. Í þeim aðgerðum er víst að fjöldi sak­lausra borg­ara léti lífið, borgir væru í rústum og sam­fé­lög sundruð. Úr þeim jarð­vegi má telja víst að spryttu nýir hópar og sam­tök sem teldu sig eiga harma að hefna – og svo koll af kolli.

Það er því ljóst að yfir­veguð við­brögð sem taka mið af stað­reyndum en ekki upp­blásnum hræðslu­á­róðri, hefnd­ar­þörf og póli­tískri sýnd­ar­mennsku, geta minkað lík­urnar á slíkri nið­ur­stöðu. Það er ekki barna­leg ein­feldni heldur her­kænska.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár