Viðhorf til Pólverja breyst á undanförnum árum

Doktor í mann­fræði frá HÍ hefur tekið mörg við­töl við Pólverja hér á landi vegna rann­sókna sinna. Einn við­mæl­andi hennar sagði að Íslend­ingar kæmu fram við þau eins og varn­ing. Aðrir finna þó ekki fyrir þessu við­horfi.

Anna Wojtynska er doktor í mann­fræði frá Háskóla Íslands en hún kom fyrst til Íslands árið 1996 og lýsir hún gjör­ó­líkum aðstæðum Pólverja hér á landi á þeim tíma. Hún segir að þeir hafi ein­ungis verið nokkur hund­ruð tals­ins, flestir hafi búið í þorpum úti á landi og aðeins örfáir í Reykja­vík. Kjarninn sett­ist með Önnu og spjall­aði við hana um reynslu Pólverja á Íslandi en hún hefur rann­sakað tengsl pólsks verka­fólks hér á landi við heima­landið og hvaða áhrif þessi tengsl hafa á hversu vel þeir hafa sam­lag­ast ís­lensku sam­fé­lagi.

Hún flutti til Ísa­fjarðar árið 2005. „Fyrst þegar pólskir inn­flytj­endur fluttu til þess­ara þorpa þá höfðu þeir tæki­færi til að aðlag­ast sam­fé­lag­inu. Til að mynda var litið á pólskar konur sem komu til Ísa­fjarðar og eign­uð­ust íslenskan maka og töl­uðu íslensku sem inn­fæddar. Svo þegar fólk talar um „þessa Pólverja“ þá er það lík­leg­ast ekki að tala um til dæmis þessar konur.“ Þannig megi segja að þegar Pól­verjar aðlag­ist vel þá sé á vissan hátt ekki lengur litið á þá sem „Pólverja“.

Hún hefur rætt við marga Pólverja í rann­sóknum sínum, bæði úti á landi og á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en flestir vinna í fisk­vinnslu úti á landi. „Fólk finnur því ekki fyrir því að það sé lág­stétt og jafn­vel hér í Reykja­vík segja sumir að vinna þeirra sé metin að verð­leikum og þar af leið­andi séu þeir einnig metnir að verð­leikum.“

Upplifun ólík eftir einstaklingum

[links]Anna telur þó að þetta hafi breyst að ein­hverju leyti á und­an­förnum árum. Eftir að svo margir Pól­verjar komu til lands­ins til að vinna og eftir að sam­band atvinnu­rek­enda og laun­þega breytt­ist þá hafi við­horfin jafn­framt breyst. Þá hafi til að mynda einn við­mæl­andi hennar sagt að Íslend­ingar komi fram við þau eins og varn­ing. Sumum líði eins og þeir séu inn­flutt vinnu­afl og ekk­ert meira.

Hún tekur sér­stak­lega fram að ástandið hafi þó ekki verið full­komið hér áður fyrr og sé ekki alslæmt núna. Sumt hafi lag­ast með tím­anum og nefnir hún sem dæmi að ákveðin vit­und­ar­vakn­ing hafi orðið varð­andi mik­il­vægi pólska tungu­máls­ins. Á öðrum sviðum hafi við­horf Íslend­inga versnað.

Hópur Pólverja fjölbreyttur

Að flytja búferlum milli landa og festa rætur í öðru landi getur verið flókið. Þegar Anna er spurð út í við­horf Pólverja gagn­vart Íslandi sem heim­kynnum þá segir hún að það sé auð­vitað ólíkt milli ein­stak­linga. „Ein pólsk kona sem ég tók við­tal við fyrir um þremur árum og býr enn hér á Íslandi, en hún hefur lík­lega búið hér hálfa ævina, talar enn eins og hún sé hérna tíma­bundið. Það er til fólk eins og hún. Og hún lifir sínu eigin lífi á Íslandi en eng­inn úr fjöl­skyld­unni hennar býr á Íslandi þannig að í hvert sinn sem hún á frí þá fer hún heim til þeirra," segir hún og bætir því við að vinnan haldi þess­ari til­teknu konu hér á landi.

„En stundum er ekki hægt að gefa ein­falt svar við þess­ari spurn­ingu. Nýlega kynnt­ist ég konu sem flutti hingað, dvaldi í stuttan tíma og sneri aftur til Póllands en nú er hún aftur komin og seg­ist vilja búa á Íslandi,“ segir hún.

Anna segir að önnur breyt­ing sem orðið hafi á und­an­förnum árum sé sú að hópur Pólverja sé orð­inn mjög fjöl­breyttur hvað varðar aldur, plön og vonir og hvaðan þau komi frá Póllandi. „Hér eru far­and­verka­menn sem eiga fjöl­skyldur í Póllandi og munu þeir snúa aftur til síns heima. Svo er til fólk sem er mitt á milli og einnig fólk sem er búið að koma sér vel fyrir hér.“

Pólska samfélagið hér á landi svipað hinu íslenska

Þegar Anna er spurð út í það hvort pólska sam­fé­lagið standi styrkum fótum hér á landi segir hún að það virki svipað og hið íslenska. „Sumir Pól­verjar myndu segja að við séum ekki nógu sam­heldin og hjálp­umst ekki nægi­lega að en á hinn bóg­inn hef ég séð að þetta virkar eins og á meðal Íslend­ing­anna. Sam­fé­lagið er smátt þannig að við vitum hvert af öðru og það er mun auð­veld­ara að mynda sam­bönd.“ Hún telur sjálf að pólska sam­fé­lagið sé mjög sam­heldið enda hafi hún séð mörg dæmi þess á þessum árum sem hún hefur dvalið á Íslandi.

Hún segir frá pól­skri vin­konu sinni sem flutti til Dan­merkur eftir að hafa búið hér á landi um nokk­urt skeið. „Hún sagði að það væri mun auð­veld­ara að tengj­ast Pól­verjum hér en úti í Kaup­manna­höfn. Hún vann í þrifum þar rétt eins og hér en borgin er svo stór.“

Hóparnir innan pólska sam­fé­lags­ins eru orðnir nokkuð margir, að sögn Önnu. Þá sé til að mynda búið að stofna hlaupa­hóp, ljós­mynd­ara­hóp og svo fram­vegis. Þannig séu Pól­verjar orðnir nógu margir á Íslandi til að mynda ýmiss konar hópa í kringum ákveðin áhuga­mál.

„Það er ljóst að Pólverja langar að hitt­ast og koma sér á fram­færi. Og þeir telja Íslend­inga á meðal sinna bestu vina og kunna vel við þá sem ein­stak­linga. Aftur á móti getur heild­ar­myndin litið aðeins öðru­vísi út, sér­stak­lega hvað varðar vinnu­að­stæður. Þær hafa breyst mikið, finnst mér, síðan góð­ærið hófst. Þær hafa versnað,“ segir hún.

Skiptir máli að vera hluti af vinnustaðnum

Varðandi við­horf gagn­vart Pól­verjum á Íslandi þá segir Anna að vegna stærðar hóps­ins þá sé auð­veld­ara að líta á þau sem nafn­lausan hóp frekar en sem ein­stak­linga og sem fjöl­mennt vinnu­afl í ófag­lærðum störfum. „Áður fyrr var hrein­gern­inga­fólkið oft­ast ráðið beint af atvinnu­rek­and­anum en nú er það breytt. Nú sjá sér­stök fyr­ir­tæki um ráðn­ingar og hefur það fyr­ir­komu­lag breytt teng­ingu inn á vinnu­stöð­unum. Nú er það fólk, sem ráðið er í gegnum þjón­ustu­fyr­ir­tæki, ekki hluti af starfs­manna­hópnum. Það skapar sundr­ung.“

Anna telur þar af leið­andi að þegar fólk er ráðið beint en ekki í gegnum þjón­ustu­fyr­ir­tæki mynd­ist önnur dýnamík milli starfs­manna. Það skipti máli að vera hluti af vinnu­staðnum en ekki ein­hvern veg­inn á jaðr­inum. Þess vegna gagn­rýnir hún til að mynda þessi ræst­ing­ar­fyr­ir­tæki og segir hún að launin séu oft það lág að fólk rétt nær endum saman.

Geta fallið milli tveggja heima

En hvernig er það að vera inn­flytj­andi á Íslandi, að mati Önnu? Hún segir í því sam­hengi að sjálfs­mynd fólks sé mis­mun­andi, enda aðlag­ist fólk með ólíkum hætti og jafn­framt séu aðstæður ólíkar. Hún bendir á að aug­ljós­lega líti Pól­verjar, sem búið hafa lengi hér á landi, á sig í fyrsta lagi sem Pólverja en einnig sem Íslend­inga. „Fyrir suma er mik­il­vægt að halda í þessa sjálfs­mynd. Fyrir börn er þetta aftur á móti flókn­ara. Stundum eru for­eldr­arnir bæði Íslend­ingar og Pól­verjar,“ segir hún. Þá falli þau jafn­vel milli þess­ara tveggja heima og geti börnin litið á sig sem bæði Íslend­inga og Pólverja.

„Við lifum á tímum þar sem fjöl­breyti­leik­anum er fagnað. Það er því ákveð­inn kostur þegar fólk er með ólíkan bak­grunn. Það er þó erf­ið­ara fyrir Pólverja að við­ur­kenna þjóð­erni sitt á Íslandi þegar hlut­irnir eru orðnir þannig að þeir vinna í lág­launa­vinnu. Ef sam­fé­lagið verður mjög stétta­skipt – jafn­vel eftir þjóð­erni – þá erum við komin á mjög slæman stað,“ segir hún.

Hægt er að lesa ítar­lega frétta­skýr­ingu um Pólverja á Íslandi hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár