Tímarnir eru að gjörbreytast í Reykjavíkurborg

Konur verða ráð­andi í Reykja­vík næstu fjögur árin. Aldrei áður hefur borg­ar­stjórn end­ur­speglað fjöl­breyti­leika borg­ar­búa með jafn skýrum hætti og í þeim átta fram­boðum sem kjörin voru.

Borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar eru afstaðnar og nið­ur­staða þeirra er marg­þætt. Alls náðu átta flokkar kjöri og hafa aldrei verið fleiri. Meiri­hlut­inn er fall­inn. Enginn aug­ljós meiri­hluti er til að taka við. Og nær allir flokk­arnir átta túlka þar af leið­andi nið­ur­stöð­una með sínu nefi.

Ein allra áhuga­verð­asta nið­ur­staða kosn­ing­anna er sú að konur verða í miklum meiri­hluta í Reykja­vík næsta kjör­tíma­bil. Alls eru 15 þeirra 23 borg­ar­full­trúa sem kjörnir voru í gær konur. Og sex þeirra átta fram­boða sem náðu kjöri eru leidd af konum. Einungis risarnir tveir, flokk­arnir sem gera til­kall til borg­ar­stjóra­stóls­ins í krafti stærðar sinnar, Sjálf­stæð­is­flokkur og Sam­fylk­ing, eru leiddir af körlum. Þá voru tveir fram­bjóð­endur sem fæddir eru í öðru landi kjörnir í borg­ar­stjórn og nýr yngsti borg­ar­full­trúi sög­unnar er af blönd­uðum upp­runa.

Ljóst er að mik­illa breyt­inga er að vænta við stjórnun Reykja­vík­ur­borgar. Ný öfl með nýjar áherslur munu koma að henni óháð því hvaða meiri­hluti verður á end­anum mynd­aður.

Kjarninn rýndi í stöð­una dag­inn eftir enn einar sögu­legu kosn­ing­arnar.

Hver vann?

Það eru margir sem telja sig sig­ur­veg­ara kosn­ing­anna í Reykja­vík. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn bætti við sig 5,1 pró­sentu­stigi milli kosn­inga. Það er lang­mesta bæt­ingin hjá þeim flokkum sem sátu í borg­ar­stjórn á kjör­tíma­bil­inu sem er að líða. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er líka orð­inn stærsti flokk­ur­inn í höf­uð­borg­inni að nýju og nið­ur­staða hans er betri en nær allar kann­anir, og raunar allur aðdrag­andi kosn­ing­anna, benti til. Í þessu ljósi vann Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn aug­ljósan sigur.

En nið­ur­staðan, 30,8 pró­sent, er líka næst versta nið­ur­staðan Sjálf­stæð­is­flokks í Reykja­vík frá upp­hafi borg­ar­stjórn­ar­kosn­inga. Hún er til að mynda lak­ari en árið 2010, þegar flokk­ur­inn fékk 33,6 pró­sent. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fékk átta borg­ar­full­trúa kjörna. Líkt og rakið er betur hér að neðan er ekki auð­sótt fyrir hann að mynda starf­hæfan meiri­hluta með þeim fjölda.

Sós­í­alista­flokk­ur­inn var aug­ljós sig­ur­veg­ari, og getur sagt slíkt án nokk­urs fyr­ir­vara. Hann náði 6,4 pró­sent atkvæða og Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir er í kjöl­farið í mjög sterkri stöðu í borg­ar­stjórn. Sigurinn er bæði sá að Sós­í­alista­flokk­ur­inn er eini flokk­ur­inn sem náði inn kjörnum full­trúa sem er ekki með full­trúa á Alþingi í dag, og hefur því ekki aðgengi að þeim hund­ruð millj­óna sem hinir sjö flokk­arnir sem sitja munu í borg­ar­stjórn næsta kjör­tíma­bilið er skammtað af fjár­lögum ár hvert.

Sós­í­alistar ráku þess í stað mjög árang­urs­ríka, ein­beitta, skýra og stíl­hreina bar­áttu í gegnum sam­fé­lags­miðla fyrir sára­lítið fé sem vakti mikla og verð­skuld­aða athygli.

Sanna þótti líka standa sig afburða­vel í öllum kosn­inga­þáttum sem hún kom fram í í aðdrag­anda kosn­inga og þrátt fyrir að vera yngsti borg­ar­full­trúi sög­unnar – hún er ný orðin 26 ára – þá var hún oft eins og full­orðni ein­stak­ling­ur­inn í her­berg­inu þegar aðrir odd­vitar tók­ust á með hefð­bundnum hætti. Þá þótti Sanna hafa svarað spurn­ingu Einars Þor­steins­sonar frétta­manns í odd­vitaum­ræð­unum á föstu­dag, þar sem hann spurði um við­skipta­sögu Gunnars Smára Egils­sonar, með mjög afger­andi og eft­ir­tekt­ar­verðum máta. Hin mikla umræða sem skap­að­ist í kringum spurn­ing­una á sam­fé­lags­miðlum spil­að­ist mjög upp í hend­urnar á Sós­í­alista­flokknum og átti ugg­laust þátt í því að fylgi þeirra varð á end­anum mun meira en allar spár höfðu gert ráð fyrir. Svar Sönnu var hennar „Sæland-augna­blik“, en mörgum er í fersku minni þegar Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, grét í odd­vita­þætti dag­inn fyrir kosn­ingar í fyrra með sam­bæri­legum afleið­ingum á fylgi hennar flokks.

Sanna Magdalena Mörtudóttir og flokkur hennar er einn helsti sigurvegari kosninganna.
Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir og flokkur hennar er einn helsti sig­ur­veg­ari kosn­ing­anna.

Mið­flokk­ur­inn og Flokkur fólks­ins eru einnig sig­ur­veg­arar í Reykja­vík ein­fald­lega vegna þess að þau náðu fólki inn í fyrsta sinn. Á lands­vísu má slá því föstu að Mið­flokk­ur­inn sé stóri sig­ur­veg­ari kosn­ing­anna og nær flokkur Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar að skjóta niður rótum mjög víða.

Píratar bæta einnig við sig fylgi á milli kosn­inga og er eini flokk­ur­inn í meiri­hluta sem gerir það. Þau geta verið mjög sátt með að ná inn tveimur öfl­ugum konum í borg­ar­stjórn, þeim Dóru Björt Gunn­ars­dóttur og Sig­ur­borgu Ósk Har­alds­dóttur, þótt að end­an­legt pró­sentu­fylgi hafi verið aðeins lægra en kann­anir og spár bentu til. Það er reyndar orðið að venju hjá Pírötum.

En stóri sig­ur­veg­ari kosn­ing­anna í Reykja­vík hlýtur að vera Viðreisn. Flokk­ur­inn er orð­inn þriðji stærsti flokk­ur­inn í borg­inni eftir að hafa boðið sig þar fram í fyrsta sinn og er með tvo borg­ar­full­trúa. Sigur flokks­ins er líka fólgin í því að hafa náð að stað­setja sig þannig að geta hótað sam­starfi við and­stæðar fylk­ingar innan borg­ar­innar til að ná fram öllu því sem hann vill ná fram í kom­andi meiri­hluta­sam­starfi, sem er nær ómögu­legt án hans.

Hverjir tapa?

Vinstri græn guldu afhroð í kjör­dæmi for­manns síns, for­sæt­is­ráð­herr­ans Katrínar Jak­obs­dóttur. Einungis 2.700 manns kusu flokk­inn í Reykja­vík. Til sam­an­burðar kusu 14.477 ein­stak­lingar Vinstri græn í þing­kosn­ingum fyrir sjö mán­uðum síðan. Flokk­ur­inn fékk ein­ungis 4,3 pró­sent atkvæða og einn kjör­inn full­trúa, Líf Magneu­dóttur. Hann er næst­minnstur allra þeirra fram­boða sem náðu kjöri í gær.

Ástæð­urnar sem nefndar hafa verið eru mýmargar. Sú háværasta er sú að verið sé að refsa Vinstri grænum fyrir stjórn­ar­sam­starf í lands­mál­unum við Sjálf­stæð­is­flokk og Fram­sókn­ar­flokk og að þessi slátrun sem átti sér stað í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum sýni svart á hvítu að ólgan innan flokks­ins sé miklu meiri en leið­togar hans vilja af láta. Það sjá­ist líka á því að fram­boð sem stillir sér vinstra megin við Vinstri græn, Sós­í­alista­flokk­ur­inn, fékk miklu betri kosn­ingu en sá flokkur sem hefur svo gott sem verið skrá­sett vöru­merki yst á vinstri ásnum síð­ast­liðna tæpa tvo ára­tugi. Önnur ástæða sé sú að meiri óánægja hafa verið á meðal borg­ar­búa með stjórn­ar­sam­starfið í Reykja­vík en meiri­hlut­inn gerði sér grein fyrir og sú þriðja að stefnu­mál og fram­boðs­listi Vinstri grænna, og sér­stak­lega odd­viti hans, hafi ein­fald­lega ekki höfðað til fólks.

Sam­fylk­ingin tapar líka illa. Þótt flokk­ur­inn sé næst stærstur og hafi náð 25,9 pró­sent atkvæða þá missti hann heil sex pró­sentu­stig af fylgi milli borg­ar­stjórn­ar­kosn­inga. Auk þess hlýtur sú til­finn­ing að vera ráð­andi hjá leið­togum Sam­fylk­ing­ar­innar að þau hafi ein­fald­lega verið of væru­kær á loka­metrum bar­átt­unnar, þegar kann­anir sýndu upp­gang en ekki sam­drátt í fylgi. Á sama tíma var vel fjár­mögnuð og -mönnuð kosn­inga­vél Sjálf­stæð­is­flokks­ins mallandi á fullu við að gera það sem hún gerir betur en nokkur annar í íslenskum stjórn­málum, að hringja skipu­lega í þús­undir sem mögu­lega gætu kosið flokk­inn og aug­lýsa grimmt þau stefnu­mál sem vitað var að almenn óánægja var með frammi­stöðu meiri­hlut­ans í (t.d. leik­skóla­mál). Vitað var að dræm kjör­sókn myndi vinna með Sjálf­stæð­is­flokknum þar sem hann sækir fylgi sitt frekar til eldri kjós­enda sem eru lík­legri til að skila sér á kjör­stað. Allt þetta gekk eftir og við marklín­una skaust helsti keppi­nautur Sam­fylk­ing­ar­innar upp en hún sjálf niður.

Litlu mun­aði að staðan yrði enn verri. Guðrún Ögmunds­dóttir, sjö­undi maður Sam­fylk­ingar, var síð­asti kjörni borg­ar­full­trú­inn og níundi maður Sjálf­stæð­is­flokks, Jórunn Pála Jón­as­dóttir, var næsti maður inn. Hefði sá við­snún­ingur orðið væri nán­ast borð­leggj­andi að Sam­fylk­ing gæti ekki leitt nýjan meiri­hluta.

Sá mögu­leiki er þó enn fyrir hendi þrátt fyrir ósig­ur­inn í gær og er jafn­vel lík­legri en sá að erkió­vin­ur­inn Sjálf­stæð­is­flokkur leiði slíkan, vegna gengis ann­arra flokka. Heild­ar­nið­ur­staðan í kosn­ing­unum vann því með mögu­leikum Sam­fylk­ing­ar­innar til að kom­ast til valda þótt eigin frammi­staða hennar hafi verið slök.

Dagur B. Eggertsson og Samfylkingin misstu flugið á síðustu metrunum og eru einn þeirra flokka sem flokkast sem taparar kosninganna.
Dagur B. Egg­erts­son og Sam­fylk­ingin misstu flugið á síð­ustu metr­unum og eru einn þeirra flokka sem flokk­ast sem tap­arar kosn­ing­anna.

Þá er ónefndur Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, sem fékk 3,2 pró­sent atkvæða og náði ekki inn manni í Reykja­vík. Í ljósi þess að um er að ræða kjör­dæmi vara­for­manns­ins og von­ar­stjörn­unnar Lilju Alfreðs­dóttur, og þess að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er rúm­lega 100 ára gam­all flokkur með sterka inn­viði og mikla reynslu af kosn­ingum, hlýtur nið­ur­staðan að vera veru­legt áhyggju­efni. Rifja má upp að Halldór Ásgríms­son heit­inn, þáver­andi for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, ákvað að draga sig í hlé úr stjórn­málum í kjöl­far borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­anna 2006, þegar Framsókn fékk 6,1 pró­sent atkvæða. Halldór sagði meðal ann­ars að hann væri að axla ábyrgð á lakri stöðu flokks­ins í þeim kosn­ingum með því að stiga til hliðar.

Hver er staðan?

Ljóst er að það má túlka nið­ur­stöðu kosn­ing­anna sem ákall um breyt­ingar. Meiri­hlut­inn er kol­fall­inn og tvær burð­ar­stoðir hans tapa umtals­verðu. Það er hins vegar ekki jafn skýrt hverjar þeir breyt­ingar eigi að vera.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn rak kosn­inga­bar­áttu sem hverfð­ist lengi vel mikið í kringum það að bjóða upp á meira mal­bik og greið­ara aðgengi fyrir einka­bíl­inn ásamt upp­bygg­ingu hús­næðis í útjaðri borg­ar­innar. Þessi afstaða var í beinni and­stöðu við gild­andi aðal­skipu­lag og þá stefnu sem meiri­hlut­inn hefur rekið í borg­inni, sem snýst um aukna þétt­ingu byggðar og rík­ari áherslur á almenn­ings­sam­göngur, fólk sem hjólar og þá sem nota tvo jafn­fljóta til að kom­ast milli staða.

Mið­flokk­ur­inn og Flokkur fólks­ins stilltu sér mjög upp með sam­bæri­lega afstöðu í skipu­lags-, hús­næðis- og sam­göngu­málum. Til ein­föld­unar þá snérist sú afstaða um að vera gegn borg­arl­inu og þétt­ingu byggðar.

Eyþór Arnalds gerir tilkall til þess að verða næsti borgarstjóri Reykjavíkur. Mynd: Bára Huld Beck
Eyþór Arnalds gerir til­kall til þess að verða næsti borg­ar­stjóri Reykja­víkur. Mynd: Bára Huld Beck

Stefnu­mál Við­reisnar í þessum mála­flokkum rím­uðu hins vegar mjög vel við áherslur frá­far­andi meiri­hluta. Flokk­ur­inn vildi borg­ar­línu og ann­ars konar hágæða almenn­ings­sam­göngur. Hann vildi vinna áfram með þétt­ingu byggðar og setja nýjar stofn­vega­fram­kvæmdir í stokk. Þá vill Viðreisn hvetja til orku­skipta í bíla­flot­anum með ýmsum hvata­að­gerðum, fjölga hjóla­stígum, stækka gjald­skyld bíla­stæða­svæði, studdu leng­ingu gjald­skyldu­tíma og afnám á hámarki á fjölda leigu­bíla. Þegar kemur að einu máli sem var nán­ast ekk­ert rætt í nýyf­ir­stöðnum kosn­ingum en er stórpóli­tísk átaka­mál, veru flug­vall­ar­ins í Vatns­mýri, er afstaða Við­reisnar skýr: „Finna þarf inn­an­lands­flugi nýja stað­setn­ingu í grennd við höf­uð­borg­ina, með þæg­indi og öryggi allra lands­manna að leið­ar­ljósi. Flug­völl­ur­inn verður áfram í Vatns­mýri þangað til að sú stað­setn­ing liggur fyrir. Viðreisn telur að nýr flug­völlur í Hvassa­hrauni sé lausn sem skoða þurfi til hlítar.“

Viðreisn vill auk þess fjölga félags­legu hús­næði um 350 á kjör­tíma­bil­inu.

Hvaða meirihlutar eru í boði?

Staðan í borg­inni eftir kosn­ingar er þannig að sitj­andi meiri­hluti er með tíu borg­ar­full­trúa og allir þrír flokk­arnir sem mynda hann hafa úti­lokað sam­starf við Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Til vinstri við frá­far­andi meiri­hluta situr Sós­í­alista­flokk­ur­inn sem hefur líka úti­lokað slíkt sam­starf. Ganga verður út frá því, þar til að annað kemur í ljós, að þær opin­beru yfir­lýs­ingar um þá úti­lokum muni halda.

Því stendur Viðreisn frammi fyrir að geta unnið til hægri með íhalds­sam­ari flokk­unum Sjálf­stæð­is­flokki, Mið­flokki og Flokki fólks­ins. Miðað við stefnu­skrá Við­reisnar, meðal ann­ars þau lyk­il­mál sem talin eru upp hér að ofan, er erfitt að sjá slíkan meiri­hluta verða að veru­leika, og enn erf­ið­ara að sjá um hvað hann ætti að snú­ast annað en að kom­ast að völdum. Annar hvor aðil­inn, Viðreisn eða hinir flokk­arnir, þyrftu að minnsta kosti að gera slíkar mála­miðl­anir í lyk­il­málum á um kúvend­ingu yrði að ræða. Slíkt færi vænt­an­lega illa í kjós­endur þeirra.

Viðreisn getur líka unnið til vinstri og ráðið því hversu langt í þá átt flokk­ur­inn er til­bú­inn að þoka sér. Sam­an­lagt eru Sam­fylk­ing, Píratar og Viðreisn, allt stjórn­mála­öfl sem skil­greina sig sem frjáls­lynda miðju­flokka – með ell­efu borg­ar­full­trúa og þurfa bara einn til við­bótar frá Vinstri grænum, Sós­í­alistum eða Flokki fólks­ins til að mynda meiri­hluta. Áherslur þess­ara flokka í mörgum lyk­il­málum ríma auk þess vel saman. Við­mæl­endur Kjarnans innan flokk­anna segja að slíkt sam­starf sé alltaf aug­ljós fyrsti kostur í ljósi sam­lægðar á mál­efna­á­herslur.

Viðreisn getur hins vegar, líkt og for­mað­ur­inn Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir sagði í Silfrinu fyrr í dag, selt sig mjög dýrt við myndum ofan­greindra meiri­hluta og komið stórum áherslu­málum sínum í önd­vegi. Þá getur flokk­ur­inn einnig stýrt því hver sest í borg­ar­stjóra­stól­inn velji hann að vinna til vinstri.

Annar mögu­leiki er auð­vitað sá að mynd­aður verði mjög vinstri­s­inn­aður meiri­hluti Sam­fylk­ingar, Vinstri grænna, Sós­í­alista, Pírata og Flokks fólks­ins. Hann myndi hafa eins manns meiri­hluta. Það yrði stórt póli­tískt veð­mál fyrir Sam­fylk­ingu og Pírata að fara inn í slíkan meiri­hluta, sem myndi aug­ljós­lega vera með mjög sterkar félags­legar áherslur, með til­heyr­andi aukn­ingu í fjár­út­látum, sem fyrir fram gefið er að myndu stuða mjög marga borg­ar­búa.

Hvernig sem fer er ljóst að höf­uð­borgin fær nýtt stjórn­enda­teymi á næstu dögum. Og tím­arnir eru að breyt­ast í Reykja­vík.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2018

Mest lesið undanfarið ár