Karolina fund: Skrifar ævisögu langafa síns

Tryggvi Magn­ús­son teikn­aði skjald­ar­merkið en er einn af mörgum lista­mönnum for­tíð­ar­innar sem er eig­in­lega gleymdur og graf­inn, segir langa­fa­barn hans sem nú vinnur að ævi­sögu hans.

Skjaldarmerkið eftir Tryggva Magnússon.
Skjald­ar­merkið eftir Tryggva Magn­ús­son.

Andrés Úlfur er mann­fræð­ingur og er í augna­blik­inu að skrifa ævi­sögu langafa síns, teikn­ar­ans og mál­ar­ans Tryggva Magn­ú­sonar (1900-1960). Tilefni þess­ara skrifa er að gefa hald­góða inn­sýn inn í líf og feril teikn­ar­ans og mál­ar­ans Tryggva Magn­ús­sonar. Nýverið voru opin­beruð gögn sem voru í vörslu Þórdísar Tryggva­dóttur, dóttur Tryggva, í meira en fjóra ára­tugi. Þetta er gríð­ar­stórt safn frum­teikn­inga eftir Tryggva sem eru talin í þús­undum og brúar það stærsta hluta ævi hans og mest allan starfs­feril.

Í umfjöll­un­inni um Tryggva Magn­ús­son verður líf hans og fer­ill rak­inn í máli og myndum þar sem stuðst verður við áður óbirt safn hans sem og áður útgefið efni. Þessi frum­gögn sem í fyrsta skipti fá að líta dags­ins ljós, gegna því veiga­miklu hlut­verki í allri umfjöllun og inn­sýn í líf mál­ar­ans og eru þunga­vigtin í kom­andi skrifum um ævi og starfs­feril lista­manns­ins. Þetta voru miklir umbrota­tímar í íslensku þjóð­lífi. Þar fór mest fyrir sjálf­stæð­is­bar­átttu land­ans, sjálfsí­mynda­sköpun nýfull­valda þjóðar og hvernig Íslend­ingar álítu sig menn­ing­ar­lega frá­brugðna öðrum, sem þjóð með sam­eig­in­legan upp­runa og sögu­lega for­tíð. Kjarninn hitti Andrés Úlf og tók hann tali.

Hver var Tryggvi Magnússon?

„Tryggvi Magn­ús­son fædd­ist alda­móta­árið 1900 og ólst upp á Ströndum í mik­illi frá­sagna­hefð í umhverfi sem var rómað fyrir galdra og galdra­fár. Hann fór í Gagn­fræði­skól­ann á Akureyri og fór svo til útlanda árin 1919-1923 í frekara nám í listum, til Dan­merkur, Banda­ríkj­anna og Þýska­lands. Tryggvi var alkom­inn heim 1923 og hóf hann þá sinn feril sem teikn­ari. Hann Tryggvi er oft tal­inn vera fyrsti teikn­ar­inn á Íslandi sem hafði atvinnu sem slíkur. Hann var braut­riðj­andi í skop og aug­lýs­inga­teiknun, sem átti þann draum að vera mál­ari.“

Er eitthvað einkennandi við listina hans?

„Þegar hann var ungur að þá var nán­ast ekk­ert mynd­mál í bókum. Hann var mjög upp­tek­inn af hetjum Íslend­inga­sagn­anna, þar sem var að finna gríð­ar­lega grein­ar­góðar lýs­ingar á bæði þjóð­sagna­per­sónum og þeirra umhverfi, en án mynd­máls. Hann var fyrst og fremst teikn­ari sem varð meist­ari í að setja mynd við mál. Hann var líka fær mál­ari, en fékk aldrei við­ur­kenn­ingu sem slíkur og hafa þeir tímar sem hann var hluti af eflaust eitt­hvað með það að gera.”

Hver eru hans þekktustu verk?

„Því miður er Tryggvi einn af mörgum lista­mönnum for­tíð­ar­innar sem er eig­in­lega gleymdur og graf­inn. Þetta er frekar erfið spurn­ing, því í gamla daga var hann eflaust þekkt­astur fyrir mynd­skreyt­ingar sínar í bækur og fyrir teikn­ingar sínar í skopá­deilu­rit­inu Spegl­inum. Í dag er hann eflaust þekkt­astur fyrir að hafa teiknað núgild­andi skjald­ar­merki Íslands.”

Hvar birtust helst verkin hans?

„Tryggvi var gríð­ar­lega afkasta­mik­ill lista­maður og var hann feng­inn í að teikna allt sem fólki dátt í hug á þessum tíma. Hann mynd­skreytti tugi barna- og ævin­týra­bóka. Hann var rit­stjóri og aðal teikn­ari skopá­deilu­blaðs­ins Speg­ils­ins í yfir tutt­ugu ár. Hann var einn af þeim merku lista­mönnum sem tók þátt í að hanna og mynd­skreyta allt fyrir Alþing­is­há­tíð­ina 1930. Hann teikn­aði jóla­svein­ana með ljóðum Jóhann­esar úr Kötlum. Tryggvi var fyrsti aug­lýs­inga­teikn­ari Raf­skinnu árin 1935-1945 og árið 1944 var teikn­ing hans af land­vætt­unum við­ur­kennd sem opin­bert skjald­ar­merki lýð­veldis Íslands. Þessi upp­taln­ing er alls ekki tæm­andi og verður það tals­verð áskorun að koma því öllu fyrir í einni bók.“

Ef það er ein­hver þarna úti sem býr yfir ein­hverjum fróð­leik um Tryggva og vill deila honum með höf­und er bent að net­fangið skjaldarmerkið@gmail.com.

Í augna­bliknu er staðið fyrir fjár­öflun hjá Karolina­fund svo að ævi­sagan um þennan stór­brotna lista­mann verði að veru­leika. „Ég bið auð­vitað alla listaunn­endur og alla þá sem vett­lingi geta valdið að taka þátt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár