Jack White samdi vinsælasta stuðningslag í heimi. Óvart.

Seven Nation Army kom fyrst út árið 2003 á hljóm­plöt­unni Elephant. Hálfu ári eftir útgáf­una heyrð­ist það á bar í Mílanó og þá var ekki aftur snúið. Lagið er nú eitt helsta stuðn­ings­lag fjölda íþrótta um allan heim.

Stuðningsmenn íslenska landsliðsins hafa látið í sér heyra í stúkunni í Frakklandi. Eitt vinsælasta stuðningslagið kemur úr óvæntri átt.
Stuðn­ings­menn íslenska lands­liðs­ins hafa látið í sér heyra í stúkunni í Frakk­landi. Eitt vin­sælasta stuðn­ings­lagið kemur úr óvæntri átt. Mynd: EPA

Knatt­spyrnu­unn­endur um alla Evrópu eru að fylgj­ast með fót­bolta í beinum útsend­ingum frá Frakk­landi. Margir af bestu knatt­spyrnu­mönnum heims eru þar mættir til að keppa um einn af stóru titl­unum í þess­ari vin­sæl­ustu íþrótt í heimi. Mótið dregur einnig að sér fjölda stuðn­ings­manna til að fylgj­ast með lönd­unum 24 keppa. Búist er við að sam­tals muni tvær og hálf milljón manna mæta á alla leik­ina á mót­inu. Allur þessi fjöldi er kannski ekki aðal­at­riðið í útsend­ing­unum en við heyrum vel í þeim.

Þannig hafa erlendir miðlar flutt fréttir af ógn­vekj­andi liðs­hrópum íslensku stuðn­ings­mann­anna á leik Íslands og Portúgal á þriðju­dag. Þeir sem fylgst hafa með íslenska lands­lið­inu í fót­bolta þekkja þetta orðið vel og fá jafn­vel ennþá gæsa­húð þegar allur mann­skar­inn hrópar „HÚHH!“ eftir tvo slætti á trommu. Vel heyr­ist í Íslend­ing­unum í útsend­ingu á rúss­nesku frá leiknum við Portú­gali.

En þó íslensku stuðn­ings­menn­irnir skeri sig úr með frið­sælum en ógn­vekj­andi fagn­að­ar­látum þá eiga þeir það sam­eig­in­legt með stuðn­ings­mönnum nær allra hinna þjóð­anna að söngla amer­ískt rokklag þegar best lætur. Stefið úr White Stripes-lag­inu Seven Nation Army er nefni­lega eitt útbreiddasta íþróttafagn í heim­inum, eins ólík­lega og það kann að hljóma.

Misskildi Salvation Army

Lagið, sem er fyrir löngu orðið eitt vin­sælasta lag The White Stripes, kom fyrst út í byrjun mars árið 2003. Jack White, for­sprakki dúós­ins í The White Stripes, hafði verið að und­ir­búa sig fyrir tón­leika í Ástralíu þegar hann setti óvart saman nokkra hljóma. Hann spurði félaga sinn um leið hvað honum fynd­ist. „Þetta er svosem ágætt,“ svar­aði félag­inn og hló en Jack White var ósam­mála. Honum leið eins og að hafa rek­ist á gull.

[adspot]

Lagið kom síðan út á fjórðu breið­skífu hljóm­sveit­ar­innar sem fékk nafnið Elephant. Jack White not­aði hug­takið „Seven Nation Army“ sem grunn að texta við lagið. „Seven Nation Army“ þýðir ekki neitt fyrir neinum heldur er það, að sögn höf­und­ar­ins, það sem hann mis­heyrði í æsku þegar talað var um „Salvation Army“.

Lagið náði aldrei neitt ofboðs­lega hátt á almennum vin­sælda­listum og fylgdi hefð­bund­inni hlust­un­ar­kúrvu popp­laga; Toppaði hratt áður en vin­sæld­irnar fjör­uðu út. Efst fór það þó í fyrsta sæti á hlið­ar­lista Bill­bo­ard-list­ans banda­ríska. Lagið var þess vegna löngu búið að missa flugið þegar það heyrð­ist á bar í Mílanó hálfu ári síðar þar sem stuðn­ings­menn belgíska fót­boltaliðs­ins Club Brugge sátu að sum­bli fyrir leik liðs­ins við stór­liðið AC Mílan í Evr­ópu­keppn­inni. Stefið hreif stuðn­ings­menn­ina sem hófu að humma með: „Da… da-DA-da da DAAH DAAH“.

Oh…oh-OH-oh oh OHH OHH

Á 33. mín­útu leiks­ins skor­aði Club Brugge á San Siro-vell­inum og það fyrsta sem heyrð­ist úr stúku Belganna var stefið sem þeir höfðu heyrt á barnum. Brugge vann leik­inn 1-0 svo stuðn­ings­menn­irnir sungu alla leið til Belgíu þar sem lagið varð að marka­lagi liðs­ins. Seven Nation Army var spilað hátt og snjallt úr hljóm­tækjum heima­vall­ar­ins þegar Brugge skor­aði og hefur verið síðan.

Francesco Totti, leik­maður Roma og lands­liðs­maður frá Ítalíu, varð svo upp­veðr­aður af lag­inu þegar hann lék með Roma gegn Brugge í Belgíu í febr­úar 2006 að hann fór bein­ustu leið eftir leik og keypti plöt­una. Og þegar Ítalir mættu til leiks á heims­meist­ara­mót­inu í Þýska­landi þetta sama ár var stefið úr Seven Nation Army orðið að fagni stuðn­ings­manna Ítalíu.

Ítalía komst alla leið í úrslita­leik­inn á HM 2006 og vann í eft­ir­minni­legum leik þegar stjarnan Zinedine Zidane, í franska liði and­stæð­ing­anna, stang­aði Marco Materazzi og fékk fyrir vikið rautt spjald. Ítölsku stuðn­ings­menn­irnir sungu svo „Oh…oh-OH-oh oh OHH OHH“ alla leið heim til Ítalíu og söng­ur­inn barst heim í stofu til áhorf­enda um allan heim.

Ekkert jafn fallegt og þegar lögin verða þjóðlög

Jack White var vit­an­lega þakk­látur Ítölunum fyrir að gera lagið hans að eins konar þjóð­lagi, jafn­vel þó því fylgi að um leið verði upp­runi lags­ins óljós. „Það er ekk­ert eins fal­legt og þegar fólk hrífst af lag­línum og kemur þeim fyrir í hofi þjóð­lagatón­listar,“ lét White hafa eftir sér þegar hann var inntur eftir við­brögðum við því að lagið hans væri orðið að íþrótta­söng.

Lagið er ekki aðeins vin­sælt meðal stuðn­ings­manna knatt­spyrnu­liða. Í Banda­ríkj­unum fylla ruðn­ings­lið marga af stærstu leik­vöngum heims í hverri viku góðan part úr ári hverju. Þar hefur stefið úr þessu fyrsta lagi Elephant-plöt­unnar einnig orðið að fagn­að­ar­lagi stuðn­ings­manna fjöl­margra liða.

Það er raunar alveg magnað að sjá mynd­bönd úr stúk­unum þar sem tug­þús­und manns sveifla sam­litum treflum og kyrja þetta vin­sæla stef. Maður getur vart ímyndað sér hvernig er að vera staddur í stúkunni.

Lagið fær að hljóma víðar á íþrótta­leik­vöngum og í mun fleiri útgáfum en hér hefur verið talið upp. Lesendum er bent á nokkuð ítar­lega yfir­ferð yfir notkun lags­ins meðal íþróttaliða um víða ver­öld á Wikipediu.

Tilvalið Bond-lag

Jack White hafði hins vegar aðrar hug­myndir um lagið þegar það var til­búið. Hann hafði ákveðið að geyma það, svona ef ske kynni að ein­hver myndi biðja hann um að semja lag við James Bond-mynd. Hann komst þó að þeirri nið­ur­stöðu að ólík­legt væri að hann myndi nokk­urn­tíma fá að semja slíkt lag svo því var þru­mað á plöt­una Elephant með The White Stripes sem kom út árið 2003. Platan er frá­bær og er af mörgum talin vera besta verk hljóm­sveit­ar­innar. Til marks um það komst hún í 390. sæti á lista Rolling Stone-tíma­rits­ins yfir 500 bestu plötur allra tíma.

Í mynd­band­inu hér að neðan ræðir Jack White við Jimmy Page, gít­ar­leik­ara Led Zeppelin, og The Edge, gít­ar­leik­ara U2, um lagið og kennir þeim að spila það með sér.

Það er kannski kald­hæðni örlag­anna sem réð því að Jack White var síðar beð­inn um að semja upp­haf­slag Bond-mynd­ar­innar Quantum of Solace sem kom út árið 2008. Lagið Another Way to die flutti hann með banda­rísku söng­kon­unni Aliciu Keys, og þótti þeim hafa tek­ist mis­jafn­lega til. Und­ir­ri­aður telur þetta lag hins­vegar til bestu Bond-laga.

Rétt er að geta þess að Seven Nation Army komst nýverið aftur á topp­lista í Banda­ríkj­unum í fyrsta sinn síðan árið 2003. Lagið er notað við stiklu úr nýjum tölvu­leik, Battlefi­eld 1, sem kemur út í haust. Seven Nation Army er þar í nýjum bún­ingi og heldur drunga­legri en í upp­runa­legri útgáfu Jack og Meg White. Og upp­runa­lega lagið sjálft? Það hljómar svona á Elephant frá árinu 2003:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

em2016

Fréttirem2016

Starfs­fólk KSÍ fær bón­us­greiðslur vegna EM

Starfs­fólk Knatt­spyrnu­sam­bands Íslands (KSÍ) fær greitt launa­upp­bót sökum álags í tengslum við þátt­töku A-lands­liðs karla á EM í Frakk­landi í sumar, þar sem liðið komst í átta liða úrslit. Uppbótin mun sam­svara mán­að­ar­launum hvers starfs­manns. Stjórn KSÍ sam­þykkti þetta á fundi í júlí. Frá mál­inu er greint í Frétta­blað­inu í dag. Geir Þor­steins­son, for­maður KSÍ, bar fram til­lög­una þegar hún...
Fréttirem2016

Eft­ir­spurn eftir gist­ingu í Frakk­landi jókst mest meðal Íslend­inga

Tífalt fleiri Íslend­ingar leit­uðu eftir gist­ingu í Frakk­landi á fyrri hluta þessa árs en í fyrra á vef Hotels.com, enda náði íslenska landsiðið í knatt­spyrnu langt á Evr­ópu­meist­ara­mót­inu sem fram fór í Frakk­landi í júní. Sam­an­borið við önnur lið sem náðu jafn langt og Ísland í keppn­inni juk­ust leitir Íslend­inga mest. Að jafn­aði fjölg­aði leitum að hót­el­her­bergjum í Frakk­landi um...
Pistillem2016

Þórður Snær Júlíusson

Þegar Arnór Ingvi tryggði Portú­gölum Evr­ópu­meist­ara­titil

Úrslita­leikir hafa til­hneig­ingu til að vera leið­in­legir. Þeir sem hafa ekki verið það eru telj­andi á fingrum ann­arar handar. Mexíkó 1986, kannski úrslita­leikur EM 2000, úrslita­leikur meist­ara­deild­ar­innar í Istanbúl árið 2005 koma upp í hug­ann. Þótt ýmsir leikir hafi inni­haldið hádramat­ísk augna­blik, t.d. magn­aður sigur Manchester United á Bayern Munich árið 1999, þá var leik­ur­inn sjálfur að mestu hund­leið­in­legur. Úrslita­leikur...
Erlentem2016

Portúgal Evr­ópu­meist­arar eftir sigur á Frökkum

Portúgal er Evr­ópu­meist­ari eftir að hafa sigrað Frakk­land 1-0 í úrslita­leik EM 2016. Eina mark leiks­ins var skorað af vara­mann­inum Eder, sem á 109 mín­útu leiks­ins. Heima­menn í Frakk­landi höfðu þótt mun sig­ur­strang­legri fyrir leik­inn og sig­ur­líkur þeirra þóttu ekki minnka þegar Cristiano Ronaldo, einn besti knatt­spyrnu­maður sög­unnar, þurfti að fara meiddur af velli um miðjan fyrri hálf­leik. Fyrir leik­inn...
Erlentem2016

Kolbeinn við það að verða kos­inn leik­maður EM á vef Sky

Kolbeinn Sig­þórs­son, fram­herji íslenska lands­liðs­ins og franska liðs­ins Nantes, er í efsta sæti í kosn­ingu á leik­manni EM hjá Sky. Kolbeinn hefur fengið yfir 20 þús­und atkvæði en Antoine Griezmann, helsta stjarna franska lands­liðs­ins, situr í öðru sæti með um 18 þús­und atkvæði. EM lýkur síðar í dag með úrslita­leik heima­manna í Frakk­landi gegn liði Portúgal. Íslenska lands­liðið datt sem...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár