Skora á íslensk stjórnvöld að sýna mannúð

Stjórn Solaris for­dæmir yfir­vof­andi brott­vísun á Maní, 17 ára trans drengs frá Íran, og skorar á íslensk stjórn­völd að sýna mannúð og tryggja að hann fá hér skjól og vernd.

Maní og fjölskylda
Maní og fjöl­skylda Mynd: Skjáskot/RÚV

Stjórn Solaris – hjálp­ar­sam­taka fyrir hæl­is­leit­endur og flótta­fólk for­dæmir yfir­vof­andi brott­vísun á Maní, 17 ára trans drengs frá Íran, og fjöl­skyldu hans og skorar á íslensk stjórn­völd að tryggja honum skjól og vernd hér á landi.

Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu frá sam­tök­unum í dag.

Mál hins 17 ára gamla trans drengs frá Íran, Maní, hefur verið til umfjöll­unar í fjöl­miðlum und­an­farna daga en brott­vís­un hans og fjöl­skyldu hans var í gær frestað vegna ann­ar­legs ástands drengs­ins. Hann var á sunnu­dag­inn lagður inn á barna- og ung­linga­geð­deild Land­spít­al­ans, í hvíld­ar­inn­lögn. Í frétt Vísis í dag kemur aftur á móti fram að honum og fjöl­skyldu hans verði vísað úr landi þegar hann útskrif­ast af Land­spít­al­anum.

Upplifði hér frelsi og öryggi

Maní sótti um alþjóð­lega vernd hér á landi ásamt for­eldrum sínum. Fjöl­skyldan fékk vega­bréfs­á­ritun til Portú­gals til þess að kom­ast frá Íran en þar hafa þau ekki sótt um vernd. Í yfir­lýs­ingu Solaris segir að íslensk yfir­völd noti stutt stopp þeirra í Portúgal á leið þeirra hingað til þess að fría sig allri ábyrgð og senda fjöl­skyld­una aftur til Portú­gals í nafni Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­innar. Þar bíði fjöl­skyld­unnar ekk­ert annað en frek­ari flótti, óör­yggi og óvissa.

Þá kemur fram að á Íslandi hafi Maní upp­lifað frelsi og öryggi og hér treysti hann sér til þess að kom út sem trans strákur. Maní ótt­ist hins vegar um öryggi sitt og líf verði hann sendur aftur til Íran. For­eldrar Maní ótt­ist mikið um vel­ferð hans og fjöl­skyld­unnar verði þau send frá Íslandi og aftur á flótta. „Maní er nú í hvíld­ar­lögn á BUGL en ástand hans er gíf­ur­lega alvar­legt. Yfir­vof­andi brott­vísun fylgir yfir­leitt gríð­ar­lega mik­ill kvíði, áhyggjur og ótti sem getur haft alvar­legar afleið­ingar,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Stjórn Solaris for­dæmir með­ferð íslenskra yfir­valda á Maní og fjöl­skyldu hans, „sem óhætt er að segja að sé í sér­stak­lega við­kvæmri stöðu. Stjórn Solaris skorar á íslensk stjórn­völd að sýna mannúð og tryggja að Maní fá hér skjól og vernd. Það er það minnsta sem hægt er að gera eftir það sem á undan er gengið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár