Staða íslenskra nemenda aldrei verið verri

Staða íslenskra nem­enda hefur aldrei verið verri á öllum þremur sviðum PISA könn­un­ar­innar en árið 2015. Þetta eru nið­ur­stöður PISA fyrir árið 2015, en skýrslan var kynnt í dag. Hún nær til hálfrar millj­óna 15 ára gam­alla nem­enda í OECD ríkjum.

Staða íslenskra barna er áber­andi verri en á öllum hinum Norð­ur­lönd­unum. Í Noregi, Danmörku og Svíþjóð hefur þró­unin í PISA heldur batnað síð­ustu ár en hún hefur versnað í Finn­landi, sem þó er með mun betri útkomu en hin Norð­ur­löndin.

PISA könn­unin mælir læsi á nátt­úru­vís­indi, stærð­fræðilæsi og lesskiln­ing hjá 15 ára börnum. Læsi á nátt­úru­vís­indi er minna hér á landi en á öðrum Norð­ur­löndum. Það gildir um alla und­ir­þætti, færni­svið og þekk­ing­ar­svið nátt­úru­vís­inda. Mikill meiri­hluti OECD ríkja stendur betur en Ísland í læsi á nátt­úru­vís­indi. Staðan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er almennt séð betri en á lands­byggð­inni. Fyrst var þetta mælt í könnun árið 2006, og milli áranna 2006 og 2015 lækk­aði með­al­a­talið í dreif­býli um 35 stig en í þétt­býli utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins um 22 stig. Lækkunin er minnst á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, 10 stig.

Þegar kemur að stærð­fræði eru börn við lok grunn­skóla með lak­ara læsi en í meiri­hluta OECD ríkja og lægra en á öllum hinum Norð­ur­lönd­unum. Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er þetta svipað með­al­tal­inu innan OECD en fyrir utan höf­uð­borg­ar­svæðið er stærð­fræðilæsi mun lak­ara. Lækkunin í stærð­fræðilæsi frá árinu 2003 nemur tæpu heilu skóla­ári, þannig að fleiri nem­endur eru á lægri hæfn­is­þrepum en færri í þeim efri, að því er kemur fram í skýrsl­unni.

Ísland var um miðjan hóp Norð­ur­land­anna þegar kemur að lesskiln­ingi árið 2000, en er nú neðst. Lesskiln­ingur hefur líkt og stærð­fræðilæsi lækkað um tæpt skólaár. Ísland er neð­ar­lega í hópi OECD ríkja og 22% nem­enda eiga erfitt með að lesa sér til gagns. Stúlkur eru á svip­uðum stað og með­al­talið hjá OECD ríkjum, en hjá drengjum er hlut­fall þeirra sem eru á lægri hæfn­is­þrepum meira en ann­ars staðar. Almennt er staðan lak­ari í dreif­býli en á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár