Bókmenntahátíð á Svalbarða – og nokkrir ísbirnir

Stella Soffía Jóhann­es­dóttir er framkvæmda­stjóri Alþjóð­legu bókmennta­há­tið­ar­innar í Reykjavík. Hún ferðast víða með bókmenntum, í ýmsum skilningi, en nýverið fór hún til Svalbarða, ásamt Jóni Kalman og Sigríði Hagalín, til að stjórna umræðum með rithöf­und­unum. Stella Soffía skrifar hér um bókmennt­areisuna til Svalbarða; ísbirni, gleði­göngu og rithöfunda.

Lítil byggð
Lítil byggð „Há fjöll blöstu við, þröngir firðir, lítið und­ir­lendi og svo kúrði þarna lítil byggð af fremur lágreistum en lit­ríkum húsum.

O Wow O Wow (How Wonderful She Is). Þetta lag af nýju plötunni með Nick Cave and the Bad Seeds hljómaði í eyrum mér þegar flugvélin gerði sig líklega til að lenda á flug­vellinum á Svalbarða. Einhvern veginn varð einmitt þessi lína úr laginu að leiðar­stefi ferðar okkar hjóna þangað fyrstu daga síðastliðins september­mánaðar því þar er margt til að hrífast af og taka andköf yfir. Ferðinni var heitið á Longyearbyen litteraturfestival, á nyrstu bókmennta­hátíð heims, þangað sem mér var boðið frá Íslandi til þess að segja frá íslenskum bókmenntum og stjórna dagskrá með rithöfundunum Sigríði Hagalín Björns­dóttur og Jóni Kalman Stef­ánssyni.

Heimsins nyrsta …

Svalbarði er eyjaklasi sem að flatar­máli samsvarar um 60% af stærð Íslands en stærsta eyjan er kölluð Spitzbergen („oddhvöss fjöll“) því hollenska land­könnuðinum Willem Barentsz, sem kom eyjunum á kortið, fannst það sérlega lýsandi. Það er óhjákvæmilegt að taka undir með Bartentsz, …

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár