INTERSPORT lokar í sumar

Ákveðið hefur verið að loka íþrótta­vöru­versl­un­inni INTERSPORT í sumar. Lag­er­sala stendur yfir og öllu starfs­fólki verður boðið ný störf hjá Festi hafi það áhuga á því.

Íþrótta­vöru­versl­unin INTERSPORT mun hætta starf­semi í sumar. Starfs­fólki hennar var tikynnt um þetta í síð­ustu viku, sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans. Eign­ar­halds­fé­lagið Festi, sem sér­hæfir sig í rekstri versl­un­ar­fyr­ir­tækja, er eig­andi INTERSPORT og hefur rekið stór­verslun undir merk­inu á Bílds­höfða í 19 ár. Auk þess þess hafa verið reknar tvær INTERSPORT versl­anir á lands­byggð­inni inn í versl­unum BYKO á Selfossi og Akureyri.

Jón Björns­son, for­stjóri Festis, stað­festir það við Kjarnann að versl­un­inni verði lokað í sumar og að lag­er­sala sé þegar hafin. Önnur verslun, sem þó verði ekki íþrótta­vöru­verslun, muni opna á þeim stað sem INTERSPORT hefur verið. „Núver­andi starfs­fólki INTERSPORT hefur verið boðið að vinna fyrir önnur fyr­ir­tæki Festi, hafi þau áhuga á því,“ segir Jón.

Festi hf. sér­hæfir sig í rekstri versl­un­ar­fyr­ir­tækja. Festi hf. er í eigu SF V slhf. og eru hlut­hafar um 30 tals­ins. SÍA II er stærsti ein­staki hlut­hafi félags­ins með um 27 pró­sent hlut. Líf­eyr­is­sjóðir eru með um 31 pró­sent hlut, trygg­inga­fé­lög og sjóðir 15 pró­sent og einka­fjár­festar um 26 pró­sent.

Festi hf. keypti fjögur fyr­ir­tæki af Norvik hf. ásamt fast­eignum í mars 2014. Með kaup­unum tók Festi yfir rekstur Kaupás, sem rekur mat­vöru­versl­anir undir merkjum Krón­unnar, Nóatúns og Kjarvals, ELKO, Inter­sport og vöru­hót­els­ins Bakkans. Þá hefur Festi jafn­framt gengið frá kaupum á hluta af fast­eigna­safni Smára­garðs.

Miklar breyt­ingar hafa orðið á íslenskum smá­sölu­mark­aði. Smá­söluris­inn Hagar keyptu til að mynd nýverið allt hlutafé í Olís og höð­fðu áður keypt Lyfju. Félagið hefur auk þess lokað tísku­vöru­versl­unum Topshop, Dorothy Perkins, Deb­en­hams, Evans og Warehouse. Breyt­ing­arnar eru flestar raktar til þess að stór alþjóð­leg fyr­ir­tæki eru að hefja starf­semi á Íslandi á næstu miss­erum. Costco opn­aði til að mynda risa­verslun sína í Garðabæ í dag og fyrsta af þremur vænt­an­legum versl­unum H&M hér­lendis mun opna í Smára­lind í haust

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár