Vilja breyta lögum til að bæta stöðu kvára og stálpa – Afi verður foreldri foreldris

Þingmenn Pírata og einn þing­maður Við­reisnar vilja breyta lögum þannig að kyn­skrán­ing hafi ekki áhrif á hvers konar for­eldrisnöfn fólk má velja sér. Þau vilja líka að kyn­hlut­laust fólk geti fengið gjald­frjálst auka­vega­bréf.

Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata.
Andrés Ingi Jónsson, þing­maður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

Þing­flokkur Pírata og einn þing­maður Við­reisnar, Hanna Katrín Frið­riks­son, hafa lagt fram frum­varp um þrenns konar breyt­ingar á ýsmum lögum sem ætlað er að bæta stöðu kvára og stálpa í sam­fé­lag­inu.

Í grein­ar­gerð sem fylgir frum­varp­inu kemur fram að verði það að lögum verði fólki frjálst að velja end­ingu for­eldris­nafns óháð opin­berri kyn­skrán­ingu. „Þá verður öryggi fólks á ferða­lögum aukið með því að heim­ila fólki með hlut­lausa skrán­ingu kyns að eiga auka­vega­bréf með annarri kyn­skrán­ingu. Að lokum er lagt til að útgáfa auka­vega­bréfs og end­ur­nýjun vega­bréfs vegna breyttrar kyn­skrán­ingar verði gjald­frjáls.“

Fyrsti flutn­ings­maður frum­varps­ins er Andrés Ingi Jónsson en auk hans eru Arndís Anna Krist­ín­ar­dóttir Gunn­ars­dóttir, Björn Leví Gunn­ars­son, Eva Sjöfn Helga­dóttir, Gísli Rafn Ólafsson og Halldóra Mogensen úr Pírötum á frum­varp­inu auk áður­nefndrar Hönnu Katrínar úr Viðreisn.

Vilja leiðrétta skekkju

Fyrsta breyt­ingin snýr að því að kyn­skrán­ing hafi ekki áhrif á það hvers konar for­eldrisnöfn fólk má velja sér. Þannig verði orðin for­eldri eða for­eldrisnöfn tekin upp í lögum um manna­nöfn í stað „föður- og móður“ eða „föður- og móð­ur­nafna“. Þá verði orðin for­eldri for­eldri síns tekin upp í stað „afa síns“. For­eldrisnöfn eru mynduð þannig að á eftir eig­in­nafni eða eig­innöfnum og milli­nafni, ef því er að skipta, kemur nafn for­eldris í eign­ar­falli með eða án við­bót­ar­innar son, dóttir eða bur. Þá verði orðin „hvort heldur er í karl­legg eða kven­legg“ í lög­unum felld á brott.

[adspot]Með þessu er ætlun þing­mann­anna að leið­rétta skekkju sem fylgdi sam­þykkt laga um kyn­rænt sjálf­ræði, vegna tveggja hlið­stæðra en ólíkra breyt­inga á lögum um manna­nöfn. Þing­menn­irnir segja það orka tví­mælis að á sama tíma og krafa um kynja­skipt eig­innöfn var fjar­lægð úr manna­nafna­lögum hafi slíkt hið sama ekki verið gert gagn­vart for­eldrisnöfnum. „Núver­andi fyr­ir­komu­lag stendur í vegi fyrir því að hluti kynsegin fólks geti að fullu nýtt rétt sinn til að breyta nafni sínu. Þetta stang­ast á við það mark­mið laga um kyn­rænt sjálf­ræði að tryggt sé að kyn­vit­und fólks njóti við­ur­kenn­ingar, enda er rétt­ur­inn til nafns stór þáttur í rétti fólks til að skil­greina kyn sitt. Því er hér lagt til að allar útgáfur for­eldris­nafna sem gild­andi lög heim­ila standi ein­stak­lingum til boða óháð kyn­skrán­ingu við­kom­andi.“

Gjaldfrjáls aukavegabréf fyrir þá sem óttast ama á ferðalögum

Önnur breyt­ingin er að hægt verði að gefa út auka­vega­bréf til fólks sem hefur ástæðu til að ótt­ast að kyn­hlut­laus skrán­ing í vega­bréfi verði því til ama á ferða­lögum. Í grein­ar­gerð segir að fyrir því séu dæmi í lögum um heim­ild til útgáfu auka­vega­bréfa, t.d. til ein­stak­linga sem ferð­ast mikið til útlanda vegna vinnu. „Með þessum hætti geta stjórn­völd unnið að auknu öryggi kynsegin ein­stak­linga. Svo virð­ist sem ekki hafi verið hugsað fyrir þessum veru­leika þegar lög um kyn­rænt sjálf­ræði voru sett. Markmið þessa frum­varps er að bæta úr því og bregð­ast þannig við ákalli þeirra ein­stak­linga sem lögum um kyn­rænt sjálf­ræði var ætlað að standa vörð um.“

Þriðja breyt­ingin sem þing­menn­irnir vilja koma í gegn er að útgáfa nýs auka­vega­bréfs verði gjald­frjáls. „Ein­stak­lingar ættu ekki að þurfa að greiða auka­lega fyrir þau mann­rétt­indi sem átti að tryggja þeim með lögum um kyn­rænt sjálf­ræði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár