Óttast að verið sé að liðka fyrir einkarekstri á kostnað Landspítalans

Fjögur einka­fyr­ir­tæki gerðu til­boð í lið­skipta­að­gerðir í útboði Sjúkra­trygg­inga Íslands sem opnuð voru í gær. Gert er ráð fyrir að 700 lið­skipta­að­gerðir verði gerðar á árinu og að kostn­aður rík­is­ins nemi um einum millj­arði. Starfs­fólk á Land­spít­ala sem Heim­ildin ræddi við ótt­ast að með þessu sé verið að liðka fyrir einka­rekstri í heil­brigð­is­kerf­inu á kostnað spít­al­ans. For­stjóri Land­spít­al­ans segir mik­il­vægt að samn­ingar við einka­að­il­ana séu tíma­bundnir, ann­ars sé hætt við því að hér verði til nýtt heil­brigð­is­kerfi sem byggi á einka­væð­ingu.

Sjúkra­trygg­ingar Íslands ósk­uðu þann 17. febr­úar eftir til­boðum frá heil­brigð­is­fyr­ir­tækjum á einka­mark­aði sem fram­kvæma lið­skipta­að­gerðir á mjöðmum og hnjám á skurð­stofum. Tilboðum átti að skila að morgni 6. mars síð­ast­lið­ins og er gert ráð fyrir að samn­ingur taki gildi fyrir 1. apríl næst­kom­andi sem þýðir að þá verði byrjað að fram­kvæma lið­skipta­að­gerðir á einka­spít­ala.

Tilboðin voru opnuð og birt á heima­síðu Sjúkra­trygg­inga Íslands síð­degis mánu­dag­inn 6. mars. Fjögur fyr­ir­tæki tóku þátt í útboð­inu. Þetta eru: Cosan slf, Ledplastikcentrum, Stoð­kerfi ehf og Klíníkin ehf.

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Einar Magnusson skrifaði
    Lykilatriði til að mæta þessum réttmætu áhyggjum Landspítalans er að láta spítalann bjóða út þau verk sem spítalinn nær ekki að sinna innan tilskyldra tímamarka í stað þess að sjúkratryggingar sjái um útboðið. Þannig er þetta gert t.d. í Noregi í góðri sátt og með góðum árangri.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár