Enn fækkar í þjóðkirkjunni

Alls hefur skráðum í þjóð­kirkj­una fækkað um 567 manns á tíma­bil­inu frá 1. des­em­ber á síð­asta ári til 1. júní 2019. Nú eru 232.105 ein­stak­lingar skráðir í þjóð­kirkj­una.

Forseti Íslands og biskup Íslands, Agnes M. Sigurðardóttir
Forseti Íslands og biskup Íslands, Agnes M. Sig­urð­ar­dóttir Mynd: Birgir Þór Harðarson

Alls hefur skráðum í þjóð­kirkj­una fækkað um 567 manns á tíma­bil­inu frá 1. des­em­ber á síð­asta ári til 1. júní síð­ast­lið­ins. Nú eru 232.105 ein­stak­lingar skráðir í þjóð­kirkj­una. Þetta kemur fram í nýj­ustu tölum Þjóð­skrár.

Um er að ræða breyt­ingar sem eru í takt við það sem átt hefur sér stað hér­lendis á und­an­förnum árum. Í byrjun árs 2009 náði fjöldi þeirra lands­manna sem skráðir eru í þjóð­kirkj­una met­tölu, en þá voru 253.069 lands­menn í henni. Frá þeim tíma hefur þeim fækkað jafnt og þétt.

Það þýðir að fjöldi þeirra sem skráðir eru í þjóð­kirkj­una hefur dreg­ist saman um 20.964 frá árs­byrjun 2009. Á því tíma­bili hefur Íslend­ingum fjölgað en þjóð­kirkj­unni hefur mis­tek­ist að ná þeim fjölda til sín líka.

Hlut­falls­lega hefur þeim sem vilja vera í kirkj­unni einnig fækkað mik­ið. Árið 1998 var 90 pró­sent þjóð­ar­innar í henni. Í dag eru tæp 65 pró­sent þjóð­ar­innar þar inni.

Fjölgun mest í kaþólska söfnuðinum

Á sama tíma­bili fjölg­aði í kaþ­ólska söfn­uð­inum um 375 manns eða um 2,7 pró­sent og í Siðmennt um 202 manns eða um 7,2 pró­sent. Aukning var einnig í Ása­trú­ar­fé­lag­inu eða um 137 manns sem er 3,1 pró­sent.

Alls voru 25.343 ein­stak­lingar skráðir utan trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­laga þann 1. júní síð­ast­lið­inn og fjölg­aði þeim um 580 frá 1. des­em­ber 2018 eða um 2,3 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

trúmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár